Neytendur

Ekki allar verslanir sem hleypi verð­lags­eftir­litinu að

Lovísa Arnardóttir skrifar
Benjamin Julian segir skipta miklu máli í verðlagseftirlitinu hvaða vörur er verið að hækka.
Benjamin Julian segir skipta miklu máli í verðlagseftirlitinu hvaða vörur er verið að hækka. Bylgjan

Benjamín Julian verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ segir hækkanir hjá birgjum á kjötvöru helstu ástæðu hækkunar á matvöru. Greint var frá því í gær að eftir tveggja mánaða lækkun á verðlagi matvöru hafi hún hækkað „með rykk“.

„Það virðast vera birgjar sem eru að hækka vörur sem vega mjög þungt í körfunni. Það eru þá kjötvörurnar fyrst og fremst, sem eru að verða dýrari, og þá grænmeti,“ sagði Benjamin Julian í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Mestar hækkanir væru frá SS og Goða. Hann segir þetta mestu hækkun frá því í mars á milli mánaða.

Hann segir Prís hafa haft mikil áhrif á vörulækkun síðustu mánaða en að þá sé einnig Nettó að lækka sig í verði og sé að reyna að vera á par við Krónuna í mörgum vörum. Hann segir verðmuninn á langflestum vörum í Krónunni og Bónus vera eina krónu og það sama gildi þá núna um vörur í Krónunni og Nettó.

Hann segir Prís vel fyrir neðan þessar verslanir í mörgum tilfellum. Þá sé einnig hægt að finna mjólkurvörur ódýrar í Costco.

Benjamin segir verðhækkanir að einhverju leyti árstíðabundnar. Jólavörur sem séu að koma í verslanir núna hafi hækkað mjög mikið frá því í fyrra. Súkkulaðivörur hafi hins vegar verið að hækka allt árið en það má rekja til uppskerubrests Gana og á Fílabeinsströndinni.

Sjá einnig: Kakó­verð aldrei hærra og verð­hækkanir á súkku­laði rétt að byrja

„Þessi sveifla núna á kjötinu er meiri en maður hefði búist við í hausthækkun,“ segir Benjamin og að pylsur hafi til dæmis hækkað mikið í verði.

Skiptir máli hvaða vörur hækka

Hann segir alltaf einhverjar vörur lækka, það séu í raun fleiri vörur að lækka en hækka, en það sem skipti máli sé hvort vörurnar sem fólk versli mikið og oft hækki mikið.

„Það er ekki sama hvaða vörur hækka.“

Ekki allar verslanir með

ASÍ er með app til að skoða verðlag sem heitir Nappið. Áður hét það Prís en það var uppfært í nýrri útgáfu í vikunni. Þar er hægt að skoða vörur og hvað þær kosta í mörgum ólíkum verslunum og þannig komast að því hvar er ódýrast að kaupa það.

Benjamin bendir samt á að það séu ekki allar verslanir sem hleypi verðlagseftirliti ASÍ að til að kanna verð. Hann hvetur fólk til þess að setja inn í appið myndir frá þessum verslunum þannig að fólk hafi raunverulega samanburð í öllum verslunum.

„Það eru vissulega einhverjar búðir sem finnst þetta ekki í lagi. En okkur finnst að almenningur eigi rétt á vita áður en hann gengur inn í búð hvað hlutir kosta þar,“ segir Benjamin.


Tengdar fréttir

Skinkan langódýrust í Prís

Prís er enn ódýrasta matvöruverslunin tæpum fjórum vikum eftir opnun. Það er niðurstaða nýjasta verðlagseftirlits ASÍ. Frá upphafi ágústmánaðar hafa fjórar stærstu matvöruverslanir landsins lækkað verð sín. Verðlag á matvöru lækkaði um 0,5 prósent á milli júlí og ágúst.

„Prís­á­hrif“ í verð­bólgu­tölum

Verð á matvöru lækkaði á milli mánaða í fyrsta sinn í þrjú ár samkvæmt nýrri mælingu Hagstofunnar og verðbólga mjakast niður á við. Formaður Neytendasamtakanna fagnar þessu en hefur þungar áhyggjur af þróun raforkuverðs.

Verslanir hafi haft með sér „þögult sam­komu­lag“ um verð

Formaður Neytendasamtakanna segir útlit fyrir að lágvöruverðsverslanir hér á landi hafi haft með sér þögult samkomulag um verð. Hann fagnar aukinni samkeppni með tilkomu nýrrar verslunar, sem ætti að draga vöruverð niður um allt land.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×