Karlar á jeppum og því er snjóruðningur góður Jakob Bjarnar skrifar 24. október 2024 10:24 Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra leggur fram fjárlög en þar hefur talsvert miklum tíma verið varið í það af sérfræðingum að kyngreina fjárlögin og lagt mat á hvað er gott fyrir konur og hvað ekki. vísir/vilhelm Talsverð vinna hefur verið lögð í það í fjárlögum að finna út hvaða áhrif lögin hafa á jafnrétti kynjanna. Þannig er að finna sérstakan kafla í frumvarpi til fjáraukalaga þar sem gerð er grein fyrir þessari vinnu og niðurstöðum hennar.
Talið er að tveir þriðju hlutar ráðstafana sem tilgreind eru í fjárlögum stuðli að jafnrétti kynjanna eða taki mið af markmiðum um jafnrétti. Aðrar tillögur ekki, þær miði að óbreyttri stöðu þar sem karlar séu almennt í meirihluta meðal „haghafa“. Þannig komast útsendarar Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármálaráðherra að því að ráðstafanir í samgöngumálum stuðli að jafnréttindum. Hér er mjög sennilega karl undir stýri í Heiðmörk. Því er snjóruðningur góður að teknu tilliti til jafnréttis, því konur eru á minni bílum og komast þá frekar leiðar sinnar.vísir/vilhelm „Þannig stækkar vetrarþjónusta vinnusóknarsvæði kvenna og eykur möguleika þeirra á að sækja fjölbreyttari vinnu meira en karla þar sem þær eiga almennt minni bíla og síður fjórhjóladrifna.“ Fleiri konur fljúga og því er Loftbrúin góð Styrkir til flugsamgangna styrkja aðstöðumun íbúa á landinu en konur nýta stuðning Loftbrúar hlutfallslega meira en karlar og er sá munur greinilegur í öllum aldursflokkum, fyrir utan börn. Þá er aukinn varnarstuðningur við Úkraínu talinn stuðla að jafnrétti. Þetta þarfnast útskýringa: „Vopnuð átök líkt og þau í Úkraínu hafa ólík áhrif á kynin. Vísbendingar eru um að átökin hafi magnað kynjamisrétti og mismunun sem fyrirfannst í Úkraínu og að konur verði einkum, frekar en karlar, fyrir fjölþættum áhrifum innrásarinnar, á meðan áhrif herskyldunnar eru fyrst og fremst á karla.“ Aukið framlag til Landhelgisgæslunnar er sagt ekkert gera fyrir konur því þar séu aðallega karlar að störfum.vísir/vilhelm Þá er eingreiðsla til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega talin styrkja stöðu viðkvæms hóps í samfélaginu en um 2/3 hlutar hópsins eru konur og er aðgerðin því talin stuðla að jafnrétti. „Ráðstafanir sem ætlað er að bregðast við ofbeldi gegn börnum og meðal barna eru almennt taldar stuðla að jafnrétti en birtingarmyndir ofbeldis eru ólíkar eftir kynjum og mikilvægt að aðgerðir taki mið af því. Þá er allur stuðningur við börn og fjölskyldur til þess fallinn að draga úr álagi á aðstandendur sem ætla má að konur finni fyrir í auknum mæli.“ Miklu fleiri karlar í kvikmyndagerð En þá eru það atriði sem ekki teljast þjóna settum markmiðum. Aukin framlög til endurgreiðslna vegna kvikmyndagerðar eru talin viðhalda stöðu þar sem hallar á konur en karlar eru í miklum meiri hluta þeirra sem starfa við kvikmyndagerð og tekur ráðstöfunin ekki á þeim kynjahalla sem er í greininni. Og Landhelgisgæslan er ekki talin góð í þessu samhengi. Aukin framlög til hennar eru talin viðhalda óbreyttri stöðu kynjanna en karlar eru í meiri hluta meðal starfsfólks og haghafa. Baltasar Kormákur er einn fremsti kvikmyndagerðarmaður landsins. Þó hann hafi lýst því yfir að hann sé femínisti þá er vandinn til staðar að mati sérfræðinga fjármálaráðherra. Alltof margir karlar eru í greininni.vísir/vilhelm Og svo er það sem ekki liggur í augum uppi, gæti verið vont fyrir konur en er það kannski ekki til lengri tíma litið. Og þar er um að ræða fjármagn til ofanflóðavarna sem mun að öllum líkindum, samkvæmt fjáraukalögum, renna að mestu til karla. „En ráðstöfunin er engu að síður talin stuðla að jafnrétti til lengri tíma litið þar sem hún eykur seiglu nærsamfélagsins gagnvart náttúruvá, í þessu tilfelli krapaflóðum. Almennt séð eru viðkvæmir hópar, t.d. börn og aldraðir, útsettari fyrir áhrifum náttúruvár og því mun aukin seigla hafa jákvæð áhrif á jafnrétti.“
Fjárlagafrumvarp 2025 Alþingi Rekstur hins opinbera Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Jafnréttismál Kvennafrídagurinn Mest lesið Björguðu á þriðja tug af Eyjafjallajökli Innlent Íslendingur á Grænlandi: „Það heyrist ekki múkk í neinum“ Innlent Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Erlent Hlýnandi veður Veður Reyndi að stinga lögreglu af á torfæruhjóli Innlent Ný gæðavottun stuðli ekki að mismunun Innlent Hestar á vappi um Kórana Innlent Blöskrar biðlaunin: „Hvernig segi ég mig úr þessu drasli?“ Innlent Mette Frederiksen heldur til Grænlands Erlent Tilkynnt um ungmenni sem framdi rán og líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Lokun skrifstofu VG og njósnir á Íslandi Reyndi að stinga lögreglu af á torfæruhjóli Björguðu á þriðja tug af Eyjafjallajökli Ungir skátar sæmdir forsetamerkinu Ný gæðavottun stuðli ekki að mismunun Mikið líf og fjör á Íslandsleikunum á Selfossi Íslendingur á Grænlandi: „Það heyrist ekki múkk í neinum“ Hestar á vappi um Kórana Tilkynnt um ungmenni sem framdi rán og líkamsárás Spenna á Grænlandi og íslenskumiði í glugga leigubíla Bæjarstjórnin gagnrýnir skýrslu um hvernig eigi að byggja upp bæinn Roðsnakk frá 19 ára frumkvöðli slær í gegn Tímaspursmál hvenær Bandaríkin snúi sér að Íslandi Blöskrar biðlaunin: „Hvernig segi ég mig úr þessu drasli?“ Grænlandsheimsókn Vance og tíu tíma langir tónleikar Mengun úr jarðvegi orsakaði skrýtið bragð af neysluvatni Bein útsending: Deildarmyrkvi á sólu Unglingur hrækti á lögreglumann Ekki náð að góma þjófa í dulargervi Vildu hætta Ameríkuflugi en keyptu svo 757-þotuna Fullveldi Íslands háð því að alþjóðalög séu virt Karlar eiga mjög erfitt með að viðurkenna risvandamál Nýtt hverfi innblásið af gömlu Reykjavík RÚV leiðréttir umfjöllun um mál Ásthildar Lóu Eldur í gömlu sundhöllinni í Keflavík Mannskæður jarðskjálfti og vasaþjófar í dulargervi Borgarfulltrúi sagður hafa sýnt ógnandi hegðun á íbúafundi Jagúar, skrautleg ferð, Baltasar Kormákur og fullt af „ís“ Eins leitað eftir slagsmál Greiða atkvæði um verkfall á Grundartanga Sjá meira