Lífið

Ó­þekkjan­leg sem frægasta geim­vera í heimi

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Fyrirsætan Heidi Klum og eiginmaður hennar Tom Kaulitz mættu í gervi E.T. í árlegt hrekkjavökupartý hennar sem fór fram á Hard Rock hótelinu í New York í gær.
Fyrirsætan Heidi Klum og eiginmaður hennar Tom Kaulitz mættu í gervi E.T. í árlegt hrekkjavökupartý hennar sem fór fram á Hard Rock hótelinu í New York í gær. Getty

Ofurfyrirsætan Heidi Klum er þekkt fyrir það að klæðast stórkostlegum búningum á hrekkjavöku sem eru í raun listaverk. Í ár hélt hún í hefðina og mætti með eiginmanni sínum, Tom Kaulitz, í þeirra árlega hrekkjavökupartí í New York í gærkvöldi, klædd upp sem geimveran E.T. úr samnefndri kvikmynd frá árinu 1982.

Bandarískir miðlar keppast nú við að sýna búning hjónanna. Heidi sló heldur betur í gegn í fyrra þegar hún mætti í sitt árlega hrekkjavökuteiti klædd sem páfugl og fékk níu akróbatdansara sér til liðs til að mynda stélið og fætur fuglsins. Eiginmaður hennar, Tom Kaulitz, mætti þá sem egg.

Árið 2022 mætti hún sem ormur og lá á gólfinu í flestum viðtölum sem hún fór í.

Fyrirsætan heldur mikið upp á hrekkjavökuna og leggur alltaf mikið í búningana sína. Hún hefur meðal annars mætt sem simpansi, hún sjálf ásamt fimm tvíförum, gamalmenni, Fíóna úr vinsælu barnamyndinni Shrek og ýmislegt fleira.

Líkt og áður sagði er fyrirsætan þekkt fyrir þá búninga sem hún hefur klæðst í fortíðinni en hér að neðan má sjá nokkra slíka:

Heidi Klum árið 2019.Getty
Árið 2018 klæddi Heidi sig upp sem Fiona.Getty
Árið 2017 var hún í gervi úlfsins úr mydnandi Michael Jackson við lagiðThriller.g





Fleiri fréttir

Sjá meira


×