Sport

Dag­skráin í dag: Glódís getur komist á toppinn

Sindri Sverrisson skrifar
Glódís Perla Viggósdóttir er fyrirliði Bayern München.
Glódís Perla Viggósdóttir er fyrirliði Bayern München. Getty/Boris Streubel

Besti miðvörður heims í fótbolta kvenna, samkvæmt kjörinu um Gullknöttinn, verður í sviðsljósinu á Vodafone Sport í dag.

Glódís Perla Viggósdóttir er fyrirliði Bayern München og hún verður í eldlínunni þegar liðið mætir Frankfurt í Þýskalandi í dag, í leik sem búast má við að verði hörkuleikur. 

Glódís og stöllur hennar þurfa stig til að endurheimta toppsæti þýsku 1. deildarinnar, eftir að Sveindís Jane Jónsdóttir og hennar félagar í Wolfsburg komust þangað í gær.

Einnig verður hægt að fylgjast með skeleggri umræðu um NBA-deildina í körfubolta, í Lögmálum leiksins, og þá er bein útsending í nótt úr NHL deildinni í íshokkí.

Vodafone Sport

17.00 Bayern München - Frankfurt (Bundesliga kvenna)

01.05 Predators - Kings (NHL)

Stöð 2 Sport 2

20.00 Lögmál leiksins (NBA)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×