Lífið

Tanja Ýr og Ryan fengu að vita kynið á sjö­ttu viku

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Tanja og Ryan byruðu saman í byrjun árs 2022.
Tanja og Ryan byruðu saman í byrjun árs 2022. Skjáskot/Tanja Ýr

Athafnakonan Tanja Ýr Ástþórsdóttir og breski hermaðurinn Ryan Amor eiga von á dreng. Parið greindi frá kyninu barnsins í myndskeiði á Instagram. Þetta mun vera fyrsta barn þeirra saman.

Í myndskeiðinu má sjá parið sprengja konfettí - bombu en úr henni kom blátt skraut sem gefur til kynna að von sé á dreng. Gleðin leyndi sér ekki hjá Ryan sem fagnaði innilega.

„Litli engillinn okkar,“ skrifaði Tanja við færsluna.

Parið, sem er búsett í úthverfi Manchester í Englandi, fékk að vita að þau ættu von á dreng þegar Tanja var gengin sex vikur á leið. Tanja og Ryan byrjuðu saman í byrjun árs 2022.

Þá greindi Tanja frá því í hringrásinni (e. story) á Instgram að þau hafi fengið að vita kynið þegar hún var gengin aðeins sex vikur á leið:

„Við fengum að vita kynið á 6. viku í skanna hérna í UK. Það eru svo margir að spyrja hvort ég meinti 16. viku í stða 6. svo ég ákvað að setja hingað inn.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×