Viðskipti innlent

Fjögur ráðin í stjórn­endastöður hjá Ís­lands­banka

Atli Ísleifsson skrifar
Árdís Björk Jónsdóttir, Freyr Guðmundsson, Guðmundur Böðvar Guðjónsson og Petra Björk Mogensen.
Árdís Björk Jónsdóttir, Freyr Guðmundsson, Guðmundur Böðvar Guðjónsson og Petra Björk Mogensen. Íslandsbanki

Íslandsbanki hefur ráðið í fjórar stöður stjórnenda hjá bankanum. Árdís Björk Jónsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður daglegra bankaviðskipta, Freyr Guðmundsson forstöðumaður stafrænnar þróunar, Guðmundur Böðvar Guðjónsson deildarstjóri vörumerkis og Petra Björk Mogensen forstöðumaður viðskiptaumsjónar.

Í tilkynningu segir að Árdís Björk komi til Íslandsbanka frá Stokki Software þar sem hún hafi gegnt starfi framkvæmdastjóra frá vordögum 2021. 

„Þar áður var Árdís yfir sjónvarps- og upplýsingatæknisviði Sýnar, stýrði verkefnastofu hjá N1, auk starfa fyrir upplýsingatæknifyrirtækið Advania á Íslandi og tölvuleikjaframleiðandann CCP.

Árið 2007 lauk Árdís diplómunámi í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands og þar áður diplómunámi í verkefnastjórn og leiðtogafærni frá sama skóla 2004.

Freyr Guðmundsson hefur undanfarin 15 ár starfað sem ráðgjafi í fjártækni, bankaþjónustu og nýsköpunargreinum í Evrópu, Asíu og Bandaríkjunum. Hann býr að mikilli reynslu á sviði vörustjórnunar og tæknilegrar forystu, stafrænna umbreytinga, leiðtogafærni og stjórnunar.

Freyr lauk BSc-gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2003.

Guðmundur Böðvar Guðjónsson, kemur til Íslandsbanka frá Símanum þar sem hann sá um markaðssetningu fyrir Sjónvarp Símans. Þar áður var hann deildarstjóri á sölu- og markaðssviði Icelandair.

Guðmundur Böðvar lauk BSc-námi í íþróttafræði frá Háskólanum í Reykjavík 2014 og svo MSc-prófi í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands 2017.

Petra Björk Mogensen hefur víðtæka reynslu úr fjármálageira og hefur starfað hjá Íslandsbanka frá árinu 2019. Hún hefur sinnt stefnumótandi verkefnum þvert á bankann með það að markmiði að auka skilvirkni og bæta þjónustuupplifun. Síðastliðin tvö ár hefur Petra gengt starfi vörustjóra útlánalausna og tekið þátt í innleiðingu á stafrænni stefnu bankans. Áður starfaði hún meðal annars hjá WOW air og Arion banka.

Petra lauk námi í viðskiptafræði við Háskóla Íslands 2006,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×