Erlent

Netanjahú rekur varnar­mála­ráð­herrann

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Samband ráðherranna tveggja hefur versnað stöðugt frá því að stríð braust út í Palestínu.
Samband ráðherranna tveggja hefur versnað stöðugt frá því að stríð braust út í Palestínu. EPA/Abir Sultan

Yoav Gallant, varnarmálaráðherra Ísraels, hefur verið gert að víkja úr starfi af Benjamín Netanjahú forsætisráðherra.

Jerusalem Post greinir frá þessu og segir Israel Katz utanríkisráðherra hafa verið boðið að taka við embættinu. Jafnframt hefur Gideon Saar, formanni hins Sameinaða hægris, verið boðið að ganga í stjórnarsamstarfið og taka við utanríkisráðuneytinu.

„Mitt æðsta hlutverk sem forsætisráðherra Ísraels er að standa vörð um öryggi Ísraels og að leiða okkur til afgerandi sigurs,“ segir í tilkynningu frá forsætisráðherranum.

„Nú þegar stríð geysar en þeim mun mikilvægara að forsætis- og varnarmálaráðherra eigi traust samband. Því miður, þrátt fyrir að við hefðum borið þetta traust hvor til annars í upphafi og náð miklum árangri á fyrstu mánuðum herferðarinnar, hefur traustið milli mín og varnarmálaráðherrans rýrnað,“ segir jafnframt.

Samband ráðherranna hefur versnað síðan að stríð braust út á Gasasvæðinu í október á síðasta ári. Gallant sakaði Netanjahú um að leyfa pólitík að hafa áhrif á ákvarðanatöku hans en Netanjahú hefur sakað Gallant um að reyna að steypa ríkisstjórn Netanjahús af stóli að innan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×