Rice meiddist í tapi Arsenal gegn Newcastle um síðastliðna helgi og gat ekki tekið þátt í tapinu gegn Inter í Meistaradeildinni í gærkvöldi.
Þrátt fyrir það var Rice valinn í landsliðshóp Englands, sem Lee Carsley tilkynnti í dag.
Vanalega tekur um fjórar til sex vikur að jafna sig eftir tábrot en Rice ætlar aðeins að gefa sér viku.
Hann vildi taka þátt í leiknum gegn Inter í gær en gat ekki reimað á sig skóna á æfingum fyrir leik vegna bólgu í fætinum.
Ljóst er að liðið þarf á hjálp að halda, aðeins eitt stig hefur komið úr síðustu þremur deildarleikjum. Arsenal situr eins og er í fimmta sæti með nítján stig.
Það glæddi Lundúnarliðið þó von að fyrirliðinn Martin Ödegaard sneri aftur á völlinn í gær en hann hafði verið frá í tæpa tvo mánuði vegna meiðsla.
Arsenal spilar við Chelsea næsta sunnudag áður en landsleikjahlé brestur á. Þar mun England mæta Grikklandi og Írlandi.