Stjörnukonan Katrín Erla Clausen hefur ákveðið að skipta yfir í Fram og semja til tveggja ára.
Framkonur eru að spila í efstu deild kvenna í fyrsta sinn síðan sumarið 1988.
Katrín er sautján ára gamall miðjumaður sem er uppalin hjá Stjörnunni. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún nú þegar öðlast nokkra reynslu í meistaraflokki, bæði með Álftanesi og Stjörnunni, en hún spilaði sjö leiki í Bestu deildinni á síðasta tímabili. Auk þess á hún tvo U15 landsleiki.
„Katrín er mjög metnaðarfull, frábær karakter og hefur nú þegar sýnt að hún hefur alla burði til að ná langt í fótboltanum. Við teljum hana styrkja hópinn mikið, bæði til styttri og lengri tíma og hlökkum virkilega til að sjá hana blómstra í Úlfarsárdalnum. Velkomin í dal draumanna Katrín!,“ segir í frétt á miðlum Fram.