Erlent

Vörpuðu sprengjum á hópa tengda Íran í Sýr­landi

Samúel Karl Ólason skrifar
Tvær bandarískar F-15 orrustuþotur á flugi. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Tvær bandarískar F-15 orrustuþotur á flugi. Myndin tengist fréttinni ekki beint. EPA/NEIL HALL

Bandarískir flugmenn framkvæmdu í gær loftárásir á níu skotmörk tengd vígahópum á vegum íranska byltingarvarðarins í Sýrlandi. Yfirmenn herafla Bandaríkjanna á svæðinu segja árásirnar hafa verið gerðar vegna ítrekaðra árása á bandaríska hermenn í austurhluta Sýrlands.

Enginn bandarískur hermaður er sagður hafa særst í árásunum en takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um þær.

Eins og fram kemur í frétt AP fréttaveitunnar eru um níu hundruð bandarískir hermenn í Sýrlandi. Þeir eru þar að aðstoða heimamenn í austurhluta Sýrlands, og þá aðallega sýrlenska Kúrda og bandamenn þeirra í SDF, við að berjast gegn vígamönnum Íslamska ríkisins.

Bandaríkjamenn gerðu í febrúar umfangsmiklar árásir á vígahópa í Sýrlandi, sem tengjast Íran, eftir að þrír bandarískir hermenn féllu í drónaárás í Jórdaníu.

Sjá einnig: Skutu drónann ekki niður vegna misskilnings

Bandaríkjamenn hafa ekki veitt upplýsingar um hvar þeir gerðu loftárásir.

Frá því Ísraelar hófu árásir á Gasaströndina í október í fyrra hafa vígahópar tengdir Íran gert ítrekaðar árásir á bandaríska hermenn í Sýrlandi og í Írak. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×