Viðskipti innlent

Bein út­sending: Kosninga­fundur Við­skiptaráðs - Horfum til hag­sældar

Lovísa Arnardóttir skrifar
Kosningafundur Viðskiptaráðs stendur nú yfir.
Kosningafundur Viðskiptaráðs stendur nú yfir. Viðskiptaráð

Viðskiptaráð efnir til kosningafundar í Hörpu í dag, miðvikudaginn 13. nóvember, undir yfirskriftinni „Horfum til hagsældar.“ Leiðtogar stjórnmálaflokka munu á fundinum ræða efnahagsmál auk annarra málaflokka sem varða bæði atvinnulífið og samfélagið í heild.

Fundurinn hefst klukkan 8.30 og stendur til 10.30. Fundurinn er haldinn í Kaldalóni í Hörpu en er líka í beinu streymi hér að neðan. Nánari upplýsingar um fundinn má finna hér. 

Eftirfarandi forystumenn stjórnmálaflokka hafa boðað komu sína:

  • Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokkurinn
  • Gísli Rafn Ólafsson, Píratar
  • Jóhann Páll Jóhannsson, Samfylkingin
  • Ragnar Þór Ingólfsson, Flokkur fólksins
  • Sigríður Á. Andersen, Miðflokkurinn
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, Framsóknarflokkurinn
  • Svandís Svavarsdóttir, Vinstri græn
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Viðreisn





Fleiri fréttir

Sjá meira


×