Innlent

Súða­víkur­hlíð líka lokað og fjöldahjálparstöðvar reyndust ó­þarfar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hákon Óli Sigurðsson tók þessar myndir eftir fyrri skriðuna í Eyrarhlíð sem féll um klukkan 15.
Hákon Óli Sigurðsson tók þessar myndir eftir fyrri skriðuna í Eyrarhlíð sem féll um klukkan 15. Hákon Óli Sigurðsson

Önnur aurskriða féll á Eyrarhlíð milli Ísafjarðar og Hnífsdals á fimmta tímanum. Vegurinn verður því lokaður út nóttina. Þá verður Súðavíkurhlíð einnig lokað klukkan tíu í kvöld. Fjöldahjálparstöðvar voru opnaðar í Bolungarvík og á Ísafirði en þeim hefur verið lokað á ný.

Þetta kemur fram í tilkynningum frá Lögreglunni á Vestfjörðum.

Í nýjustu tilkynningunni frá lögreglu segir að fjöldahjálparstöðvum, sem voru opnaðar fyrr í kvöld í Bolungarvík og á Ísafirði, hafi verið lokað þar sem ekki reyndist lengur þörf á þeim. 

Vanti einhvern gistingu í nótt bendir lögreglan viðkomandi á að hringja í 112 og óska eftir sambandi við lögregluna á Ísafirði sem muni í kjölfarið gera þá ráðstafanir.

Ráðstafanir gerðar vegna íbúa „öfugu megin“

„Verið er að gera ráðstafanir vegna þeirra sem eru staðsettir „öfugu“ megin við heimili sín,“ sagði í tilkynningu lögreglu rétt fyrir klukkan 17 síðdegis. Íbúar í Bolungarvík og Hnífsdal komast ekki til Ísafjarðar og öfugt.

Aurskriða féll á sama dag um klukkan 15 í dag og má sjá myndefni frá svæðinu, sem Hákon Óli Sigurðsson, tók fyrir fréttastofu hér að neðan.

Lögreglan hefur sagt að nánari upplýsingar verði settar inn á Facebook-síðu lögreglunnar á Vestfjörðum um leið og þær liggja fyrir.

„Vinsamlegast sparið símtöl við lögreglu vegna þessa, þar sem álagið er mikið og allar upplýsingar sem máli skipta munu berast hér,“ sagði lögreglan og vísaði aftur til Facebook-síðu sinnar.

Aurskriðurnar hafa haft áhrif víðar í Ísafjarðarbæ, meðal annars á Flateyri þar sem lokað var fyrir vatnið á meðan hreinsun á vatnsbóli stendur yfir.

Myndir og myndbönd af vettvangi

Álfheiður Marta Kjartansdóttir tók myndböndin að neðan á og við Flateyri fyrir fréttastofu.

Að neðan má sjá fleiri myndir frá Eyrarhlíð.

Hákon Óli Sigurðsson
Hákon Óli Sigurðsson
Hákon Óli Sigurðsson
Hákon Óli Sigurðsson
Hákon Óli Sigurðsson

Tengdar fréttir

Stór aurskriða féll við Eyrarhlíð

Aurskriða féll á veginn um Eyrarhlíð milli Ísafjarðar og Hnífsdals um þrjúleytið. Vegurinn er lokaður vegna þessa og verður um sinn. Staðan verður metin út frá aðstæðum að því er segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Vestfjörðum.

Ferðaðist frá Flateyri til Ísafjarðar til að fylla á vatnsflöskur

Skrúfað verður fyrir vatnið á Flateyri eftir skriðuföll næturinnar og eru íbúar í Bolungarvík hvattir til að sjóða vatn fyrir neyslu þar sem það er drullugt. Þá liggur matarvinnsla niðri á svæðinu. Íbúi á Flateyri greip til þess ráðs að fylla á vatnsflöskur á Ísafirði vegna vatnsskorts.Töluverð skriðuhætta er enn á Vestfjörðum. Elísabet Inga.

Neyslu­vatnið í Bolungar­vík drullugt og í ó­lagi

Íbúar í Bolungarvík hafa verið hvattir til að sjóða vatn til neyslu eftir að skriður féllu á vatnsbólið í Hlíðardal. Vatnið í bænum er því ekki gott, drullugt og óhæft til drykkjar þar sem allar síur hafi stíflast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×