Innlent

Þúsundir hænsna drápust í bruna á eggja­búi við Voga

Kjartan Kjartansson skrifar
Slökkvilið þurfti að reiða sig á tankbíla til að slökkva eldinn á eggjabúinu þar sem erfitt var að komast í vatn. Það þurfti að sækja inn í Voga en búið stendur aðeins fyrir utan bæinn.
Slökkvilið þurfti að reiða sig á tankbíla til að slökkva eldinn á eggjabúinu þar sem erfitt var að komast í vatn. Það þurfti að sækja inn í Voga en búið stendur aðeins fyrir utan bæinn. Brunavarnir Árnessýslu

Um sex þúsund hænsni drápust í eldsvoða á eggjabúi Nesbús við Voga á Vatnsleysuströnd í nótt. Slökkvilið glímdi við eldinn í þaki eins vinnslurýma búsins langt fram á morgun.

Allt tiltækt lið brunavarna Suðurnesja var kallað út eftir að tilkynning barst um eld í þaki eggjabúsins örfáum mínútum eftir miðnætti í nótt. Herbert Eyjólfsson, varðstjóri hjá brunavörnum Suðurnesja, segir að þegar slökkvilið kom á staðinn hafi eldurinn verið í stórum lofttúðum á þakinu.

Aðkoma slökkvliðsmanna að eldinum var nokkuð snúin. Herbert segir að loftið á vinnslurýminu hafi verið klætt með bárujárni og erfitt að eiga við það. Þá var erfitt að komast í vatn og þurfti slökkvilið að reiða sig á tankbíla sína, þar á meðal einn sem kom frá slökkviliðinu í Grindavík.

Slökkviliðsmönnum tókst þó að koma í veg fyrir að eldurinn bærist í aðliggjandi rými þar sem fleiri dýr voru hýst. Búið var að slökkva eldinn um klukkan hálf sex í morgun. Slökkviliðsmenn voru enn á öryggisvakt á vettvangi á áttunda tímanum í morgun.

Öll hænsnin sem voru í rýminu þar sem eldurinn kviknaði drápust, alls um sex þúsund skepnur. Þau drápust af völdum reyksins sem fyllti allt rýmið, að sögn Herberts. Þak vinnslurýmisins sé að líkindum ónýtt.

Lögregla tekur við vettvangi brunans þegar öryggisvakt slökkviliðsins lýkur og hefst þá rannsókn á upptökum eldsins. Herberti er ekki ljóst hver upptökin voru en ýmis búnaður sé í þakinu sem stjórni loftræstingu og öðru í vinnslurýminu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×