Körfubolti

Borce Ilievski snýr aftur í Breið­holtið og tekur við ÍR

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þegar Borce Ilievski þjálfaði ÍR þá spiluðu þeir í Seljaskóla en nú spila þeir í nýju íþróttahúsi í Mjóddinni.
Þegar Borce Ilievski þjálfaði ÍR þá spiluðu þeir í Seljaskóla en nú spila þeir í nýju íþróttahúsi í Mjóddinni. Vísir/Bára

ÍR-ingar eru búnir að finna sér nýjan þjálfara og sá kannast vel við sig í herbúðum ÍR.

Borce Ilievski er hættur með 1. deildarlið Fjölnis og tekur í staðinn við Bónus deildarliði ÍR. ÍR tilkynnti þetta á miðlum sínum í kvöld. Fjölnir hafði áður tilkynnt að þjálfarinn væri hættur störfum í Grafarvoginum.

Borce mun taka við starfi Ísaks Mána Wium sem hætti skyndilega með liðið eftir sjöttu umferðina.

Baldur Már Stefánsson, aðstoðarmaður Ísaks, stýrði ÍR til sigur í síðasta leik í Njarðvík en Breiðholtsliðið var þá búið að tapa sex fyrstu leikjum sinum.

Fyrsti leikur Borce verður á móti Valsmönnum eftir landsleikjahlé.

„Ég er virkilega ánægður að vera kominn aftur til ÍR. Það eru krefjandi leikir fram undan þar sem allir þurfa að leggjast á eitt til að snúa gengi liðsins við. Síðasti leikur á móti Njarðvík var góður og vonandi náum við að byggja á því áfram. Ég vil hvetja alla til að mæta á næstu leiki því öflugur stuðningur úr stúkunni er ómetanlegur – Áfram ÍR,“ sagði Borce við miðla ÍR.

Borce þjálfaði ÍR í sex ár frá 2015 til 2021 en hápunkturinn var þegar hann fór með liðið alla leið í lokaúrslitin vorið 2019. Hann hefur þjálfað Fjölni frá árinu 2022.

Borce hefur þjálfað á Íslandi frá árinu 2006 en hann hefur einnig þjálfað KFÍ, Tindastóls, Bolungarvík og Breiðabliki.

Hákon Örn, fyrirliði ÍR, þekkir vel til Borche og hlakkar til samstarfsins: „Ég er virkilega ánægður fyrir hönd félagsins að fá Borche aftur til liðs við okkur en ég sjálfur lék undir hans stjórn um árabil og áttum við frábæran tíma þá. Ég er sannfærður um að endurkoma Borche muni styrkja okkur í baráttunni sem er framundan,“ sagði Hákon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×