Körfubolti

Sækja allar ruslatunnur úr Grinda­vík

Sindri Sverrisson skrifar
Fjarlægja á allar ruslatunnur úr Grindavík.
Fjarlægja á allar ruslatunnur úr Grindavík. VÍSIR/VILHELM

Til stendur að fjarlægja allar ruslatunnur úr Grindavík um helgina og á að koma þeim fyrir í Reykjanesbæ.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá körfuknattleiksdeild Grindavíkur en deildin kallar eftir sjálfboðaliðum í verkefnið sem er fjáröflun fyrir hana.

Þrátt fyrir eldgos og jarðhræringar, sem neytt hafa Grindvíkinga til að flytja í burtu úr bænum sínum, þá hafa þeir haldið áfram íþróttastarfi sínu og körfuknattleiksdeildin er með öflug lið á sínum snærum, bæði í Bónus-deild karla og kvenna.

Fjáröflunin um helgina er liður í að halda starfinu áfram og í tilkynningu eru Grindvíkingar hvattir til að hjálpa til með því að ganga um bæinn og sækja ruslatunnur, á laugardag og sunnudag.

Grindvíkingar hafa eins og fyrr segir haldið áfram að tefla fram íþróttaliðum og eru körfuboltaliðin þeirra með heimavöll í Smáranum í Kópavogi. Þar hafa þeir safnast saman á leikjum og nýtt tækifæri til að hittast, og myndað góða stemningu. 

Kvennalið Grindavíkur verður einmitt á ferðinni í kvöld þegar það glímir við topplið Hauka klukkan 19:15, en karlaliðið er í fríi vegna landsleikja og á svo næst tvo útileiki áður en liðið spilar næst í Smáranum gegn Val, 13. desember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×