Innlent

Vaxtalækkun fellur í góðan jarð­veg

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Bylgjan hádegi

Í hádegisfréttum verður fjallað um þá ákvörðun Peningastefnunefndar að lækka stýrivexti Seðlabankans í morgun.

Þetta er í annað skipti í röð sem bankinn lækkar vextina og hefur ákvörðunin fallið í góðan jarðveg. Seðlabankastjóri segist einnig vongóður um að lækkunarferlið haldi áfram.

Við höldum síðan áfram að fjalla um breytingar á búvörulögum og þær afleiðingar sem dómur héraðsdóms á dögunum hefur haft, en breytingarnar voru þar taldar fara í tráss við stjórnarskrá. Formaður Bændasamtakanna segir brýnt að fá úr því skorið við fjölskipað dómsvald það sé rétt.

Einnig tökum við púlsinn á kennaradeilunni en aftur var boðað til formlegs fundar í morgun eftir fundarhöld gærdagsins.

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 20. nóvember 2024



Fleiri fréttir

Sjá meira


×