Enski boltinn

Fær ekki að eyða í leik­menn í janúar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ruben Amorim þegar hann mætti í viðtal við MUTV stöðina á Old Trafford.
Ruben Amorim þegar hann mætti í viðtal við MUTV stöðina á Old Trafford. Getty/Ash Donelon

Rúben Amorim er tekinn við liði Manchester United en ólíkt forvera sínum þá fær hann ekki að kaupa leikmenn fyrir stórfé í næsta glugga.

Eric ten Hag, sem United lét fara á dögunum, fékk að eyða 564 milljónum punda í nýja leikmenn á sínum tíma sem er það mesta hjá knattspyrnustjóra félagsins síðan að Sir Alex Ferguson réði ríkjum.

Mörg af þessum kaupum Ten Hag hafa ollið miklum vonbrigðum og dýrir leikmenn komast varla í hópinn, hvað þá í liðið. Það þarf að bæta innkaupastefnu félagsins og því verður ekki anað út í nein kaup í janúar.

ESPN hefur heimildir fyrir því að skilaboðin til Amorim frá eigendum United væru þau að hann þyrfti bara að ná því besta út úr þeim leikmönnum sem væru þegar hjá félaginu. Samkvæmt fyrrnefndum heimildarmönnum þá er lítill peningur til hjá United eins og við höfum reyndar séð í alls konar sparnaðaraðgerðum á síðustu mánuðum.

Það eru breyttar áherslur og nú þarf Portúgalinn að framkalla svipuð kraftaverk og hann gerði hjá Sporting Lissabon. Sporting seldi leikmenn fyrir miklu hærri upphæð en þeir keyptu menn fyrir þessi sigursælu ár Amorim þar.

Honum tókst að búa til fullt af stjörnum þar en það er vissulega nóg af stjörnum í herbúðum United. Vantar frekar bara að þeir nýti hæfileika sína inn á vellinum.

Það styttist í fyrsta leik United undir stjórn Amorim sem er á móti Ipswich Town á Portman Road á sunnudaginn.

Hinn 39 ára gamli Amorim fær ekki margar æfingar með öllu liðinu enda hafa margir verið uppteknir með landsliðum sínum. Liðið stóð sig vel undir stjórn Ruud van Nistelrooy og það er strax komin önnur ára í kringum liðið en þegar Ten Hag sat í stjórastólnum.

Liðið er samt bara í þrettánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar og því þarf mikið átak til að koma liðinu aftur í Meistaradeildarsæti.

Amorim er því kominn í mjög krefjandi og pressumikið starf en það verða mörg augu á honum og liðinu í fyrstu leikjunum. Stuðningsmenn Manchester United geta aftur á móti hætt að láta sig dreyma um nýja og öfluga leikmenn í janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×