Innlent

Verk­föll boðuð í fjórum grunn­skólum í janúar

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Engjaskóli í Grafarvogi er einn fjögurra skóla þar sem kennarar munu leggja niður störf í janúar.
Engjaskóli í Grafarvogi er einn fjögurra skóla þar sem kennarar munu leggja niður störf í janúar. Vísir/Egill

Félagsfólk Kennarasambands Íslands í Egilsstaðaskóla, Grundaskóla á Akranesi, Engjaskóla í Reykjavík og Lindaskóla í Kópavogi hefur samþykkt boðun verkfalls í janúar næstkomandi. Yfirgnæfandi meirihluti kennara var hlynntur verkföllum.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef KÍ. Verkföll hefjast í skólunum 6. janúar 2025 og lýkur 31. janúar hafi kjarasamningar ekki náðst fyrir þann tíma. Félagsmenn í Félagi grunnskólakennara og Skólastjórafélagi Íslands sem starfa í skólunum greiddu atvæði um verkfallsboðunina og stóð atkvæðagreiðsla yfir 19. til 21. nóvember.

Fram kemur í tilkynningunni að kjörsókn hafi verið á bilinu 96 og 100 prósent og 98 til 100 prósent þeirra sem greiddu atkvæði hafi verið fylgjandi verkfalli. 

Nú standa yfir verkföll í þremur grunnskólum: Áslandsskóla í Hafnarfirði, Laugalækjarskóla í Reykjavík og Lundarskóla á Akureyri. Verkföllin hófust 29. október og lýkur á morgun, 22. nóvember. Á mánudag taka við verkföll í Garðaskóla í Garðabæ, Árbæjarskóla í Reykjavík og Heiðarskóla í Reykjanesbæ. Verkföllin standa til 20. desember hafi samningar ekki náðst.

Þá standa yfir ótímabundin verkföll í Leikskóla Seltjarnarness, leikskólanum Holti í Reykjanesbæ , Drafnarsteini í Reykjavík og Ársölum á Sauðárkróki. Eins stendur yfir verkfall í Fjölbrautaskóla Suðurlands sem hófst 29. október og varir til 20. desember. Þá lagði starfsfólk MR niður störf síðastliðinn mánudag og vara þau verkföll eins til 20. desember. Þá er félagsfólk KÍ í Tónlistarskóla Ísafjarðar í verkfalli sem jafnframt stendur til 20. desember.

Samninganefndir kennara annars vegar og ríkis og sveitarfélaga hins vegar funda þriðja daginn í röð hjá ríkissáttasemjara í Karphúsinu. Magnús Þór Jónsson formaður KÍ segir í samtali við fréttastofu að ólíklegt sé að samningar verði undirritaðir í dag en viðræður séu í gangi.


Tengdar fréttir

Fyrrverandi forseti furðar sig á taktík kennara

Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti var gestur á hátíðarhöldum á Seltjarnarnesi í dag þar sem haldið var upp á dag mannréttinda barna. Í ræðu sinni ræddi Guðni tengsl sín við Seltjarnarnes og ýmislegt annað. Þá barst einnig í tal verkfall kennara en kennarar í leikskólanum á Seltjarnarnesi hafa verið í ótímabundnu verkfalli frá 29. október.

Funda þriðja daginn í röð á morgun

Hreyfing er komin á kjaraviðræður kennara og ríkis og sveitarfélaga. Samninganefndir funduðu í Karphúsinu í gær og sátu svo aftur í allan dag á fundi.

Varar við launahækkunum umfram núverandi kjarasamninga

Seðlabankinn býst við að verðbólga verði komin niður í 2,5 prósent árið 2026.  Seðlabankastjóri segir þó óvissuþætti í kortunum og hagfræðingur varar við miklum launahækkunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×