Mennirnir á bakvið þættina. Jóhann Alfreð Kristinsson, Ívar Kristján Ívarsson kvikmyndatökumaður, Andri Ólafsson og Hrafn Jónsson.Hulda Margrét
Fjölmennt var í forsýningarpartýi heimildaþáttaraðarinnar Kaninn sem fór fram á veitingastaðnum Just Wingin' It á Snorrabraut í gærkvöld.
Um er að ræða fjögurra þátta seríu sem verður frumsýnd á Stöð 2 og Stöð 2 Sport þann 24. nóvember næstkomandi.
Jóhann Alfreð Kristinsson, lögfræðingur og grínisti, Andri Ólafsson, upplýsingafulltrúi Landspítalans, og Hrafn Jónsson, kvikmyndagerðarmaður, eru höfundar þáttanna sem segja frá bandarískum körfuboltamönnum sem hafa leikið hér á landi síðan fyrstu leikmennirnir komu til Íslands um miðbik áttunda áratugsins.
Hér að neðan má sjá stiklu úr þáttunum:
Höfundarnir heimsóttu nokkrar af goðsögnum efstu deildarinnar, svo sem Shouse, Rondey Robinson og Frank Booker, sem settu mark sitt á íþróttina og samfélagið. Í þáttunum velta þeir upp þeirri spurningu hvernig það er að fara frá því að spila fyrir þúsundir áhorfenda í háskólaboltanum í Bandaríkjunum, yfir í að halda áfram að elta drauminn á lítilli eyju í Norður-Atlantshafi.
Hulda Margrét ljósmyndari mætti á svæðið og myndaði gleðskapinn.
Framleiðandinn ógurlegi á Stöð 2 Sport og nýbakaði tveggja barna faðirinn, Arnar Jónmundsson, lét sig ekki vanta. Á bakvið hann má sjá glitta í Egil Birgisson og Stefán Árna Pálsson.Hulda MargrétKörfuboltaparið Finnur Atli Magnússon og Helena Sverrisdóttir mættu að sjálfsögðu.Hulda MargrétEinn af framleiðendum þáttanna, Hrafn Jónsson ásamt unnustu sinni Brynhildi Bolladóttur.Hulda MargrétMikil ánægja var með fyrsta þáttinn.Hulda MargrétÞessi voru í góðum fíling.Hulda MargrétBaldur Ólafsson fyrrverandi leikmaður KR var að sjálfsögðu mættur. Hér er hann til hægri ásamt góðum vinum.Hulda MargrétBjór og lopapeysa, eitrað dúó. Einar Baldvin Arason lengst til vinstri ásamt félögum sínum.Hulda MargrétHelgi Hrafn Ólafsson og félagar skemmtu sér vel, drukku bjór og fengu sér vængi.Hulda MargrétNablinn lætur sig ekki vanta þegar frír bjór og vængir eru í boði.Hulda MargrétMarreon Jackson og Marcus Brown voru á meðal gesta.Hulda MargrétÚlfur Teitur Traustason klippir þættina, hér er hann ásamt tveimur félögum í góðu stuði.Hulda MargrétGoðsagnir af Suðurnesjum. Páll Kristinsson og Skúli Björgvin Sigurðsson.Hulda MargrétGeiturnar í Vesturbænum og Hlíðahverfinu. Jón Kári Eldon og Jóhann Skúli, sem ákvað reyndar að fá sér froðu í staðinn fyrir bjór í þetta skiptið.Hulda MargrétDómarinn Gunnlaugur Már Briem ásamt góðum félögum.Hulda MargrétTómas Þór Þórðarson ásamt mönnunum á bakvið Körfuboltakvöld á Stöð 2 Sport Stefáni Árna Pálssyni, Garðari Erni Arnarsyni og Stefáni Snæ Geirmundssyni.Hulda MargrétFrank Booker lét sig að sjálfsögðu ekki vanta enda faðir hans til umfjöllunar í þáttunum.Hulda MargrétTryggvi Ólafsson ásamt vinkonum sínum.Hulda MargrétJordan Semple leikmaður Þór Þorlákshafnar mætti og hitti vini og vandamenn.Hulda MargrétHenry Birgir Gunnarsson og Eiríkur Stefán Ásgeirsson ásamt félögum.Hulda MargrétBryndís Sigurðardóttir ásamt Margréti Gunnlaugsdóttur tengdamóður sinni en unnusti Bryndísar er Andri Ólafsson einn af mönnunum á bakvið þættina.Hulda MargrétAlltaf gott að vera í lopapeysu þegar vængir eru borðaðir.Hulda MargrétÞessir voru í stuði.Hulda MargrétKristórfer Acox og Taiwo Badmus leikmenn Vals voru í stuði.Hulda MargrétKristín Cardew og Guðberg Sumarliðason hress að vanda.Hulda MargrétGoðsögnin af Akranesi, Gunnlaugur Jónsson ásamt tveimur öðrum.Hulda MargrétNóg af kjúklingavængjum í boði.Hulda MargrétHrafn Jónsson, Jóhann Alfreð Kristinsson og Andri Ólafsson mennirnir á bakvið þættina héldu erindi fyrir sýningu.Hulda MargrétBjór í könnu klikkar aldrei.Hulda MargrétValsararnir Breki Logason og Ólafur Thors voru í stuði, eins og oftast.Hulda MargrétHulda Margrét