Erlent

Jöfnuðu fjöl­býlis­hús við jörðu um miðja nótt

Samúel Karl Ólason skrifar
Árás næturinnar jafnaði átta hæða hús við jörðu og skemmdi önnur nærliggjandi hús.
Árás næturinnar jafnaði átta hæða hús við jörðu og skemmdi önnur nærliggjandi hús. AP/Hassan Ammar

Umfangsmikil loftárás Ísraela í Beirút í Líbanon í nótt jafnaði fjölbýlishús við jörðu. Að minnsta kosti ellefu eru látnir og rúmlega tuttugu særðir en talið er að báðar tölur muni hækka.

BBC hefur eftir fjölmiðlum í Líbanon að allt að  fimm sprengjur hafi hæft átta hæða hús í Basa-hverfi Beirút í nótt, um klukkan fjögur að nóttu til. Svo virðist sem engar viðvaranir hafi verið gerðar, eins og Ísraelar hafa af og til gert í aðdraganda árása í borginni.

Fjölbýlishúsið var jafnað við jörðu og önnur nærliggjandi hús skemmdust verulega. Ekki liggur fyrir hvert skotmark árásarinnar var en fregnir hafa borist af því að mögulega hafi það verið meðlimur í stjórnarráði Hezbollah.

Ísraelar hafa fellt fjölmarga leiðtoga hryðjuverkasamtakanna á undanförnum mánuðum. Þar á meðal eru æðstu leiðtogar samtakanna og margir millistjórnendur.

Sjá einnig: Felldu tals­mann Hez­bollah í mið­borg Beirút

Samkvæmt Reuters er þetta í fjórða sinn í þessari viku sem Ísraelar varpa sprengjum á miðja Beirút en hingað til hafa árásir þeirra að mestu verið gerðar á sunnanverð úthverfi borgarinnar, þar sem ítök Hezbollah hafa verið mikil í gegnum tíðina.

Fréttamaður BBC birti meðfylgjandi myndband eftir árásina í nótt.

Eftir árás næturinnar gerðu Ísraelar einnig árásir í suðurhluta Beirút sem herinn segir að beinst hafi gegn stjórnstöð Hezbollah, vopnageymslu og öðrum skotmörkum. Í yfirlýsingu frá hernum segir að skotmörkin hafi verið meðal íbúðarhúsa en gripið hafi verið til aðgerða til að draga úr mannfalli meðal óbreyttra borgara. Þar á meðal hafi fólk verið varað við því að yfirgefa svæðið í aðdraganda árásanna.

Fréttamaður BBC á svæðinu sagði íbúa þriggja bygginga í suðurhluta Beirút hafa verið varaða við og þeim gert að yfirgefa hús sín.

Ísraelar og Hezbollah, sem njóta stuðnings klerkastjórnar Íran, hafa lengi eldað grátt silfur saman. Átökin þeirra á milli náðu nýjum hæðum þegar Hezbollah-liðar hófu eldflaugaárásir sínar á Ísrael þann 8. október, eftir að Ísraelar hófu árásir á Gasaströndina. Um sextíu þúsund Ísraelar hafa þurft að flýja heimili sín vegna þessara árása.

Ísraelar hafa gert umfangsmiklar og mannskæðar loftárásir í Líbanon og gerðu innrás í ríkið fyrr í haust, með því yfirlýsta markmiði að reka Hezbollah-liiða frá suðurhluta Líbanon.

Að minnsta kosti 3.500 manns liggja í valnum eftir árásir Ísraela í Líbanon, samkvæmt yfirvöldum þar, og rúm milljón manna hafa þurft að flýja heimili sín.

Fjöldi látinna hefur verið uppfærður.


Tengdar fréttir

Heitir peningaverðlaunum og lausn þeim sem frelsa gísla

Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hefur heitið þeim fimm milljónir dala sem frelsar gísl úr prísund sinni á Gasa. Þá lofar hann því að viðkomandi og fjölskylda hans fái að yfirgefa Gasa og komast í öruggt skjól.

Felldu tals­mann Hez­bollah í mið­borg Beirút

Aðaltalsmaður Hezbollah-samtakanna féll í loftárás Ísraelshers á miðborg Beirút í Líbanon í dag. Ísraelar hafa gert harðar árásir á Líbanon undanfarnar vikur en fæstar þeirra hafa verið á miðborgina.

Naim Qassem tekur við stjórn Hezbollah

Forsvarsmenn Hezbollah samtakanna í Líbanon tilkynntu í morgun að Naim Qassem myndi taka við stjórnartaumunum af Hassan Nasrallah, sem felldur var í loftárás í síðasta mánuði. Qassem var næstráðandi Hezbollah en Hashem Safieddine, sem var arftaki Nasrallah, var einnig felldur í loftárás í byrjun október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×