Handbolti

Þjálfari FH með hljóð­nema á sér: „Massa reynsla hérna í bland við massa greddu“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sigursteinn Arndal messar yfir FH-ingunum sínum.
Sigursteinn Arndal messar yfir FH-ingunum sínum. fh

Samfélagsmiðladeild FH leyfði stuðningsmönnum sínum og öðrum handboltaáhugamönnum að skyggnast bak við tjöldin í leik liðsins gegn Gummersbach í Evrópudeildinni.

Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, var nefnilega með hljóðnema á sér í leiknum. FH-ingar hafa nú frumsýnt afraksturinn af því en fylgst var með Sigursteini inni í búningsklefa fyrir leik og á hliðarlínunni meðan á leik stóð.

Í innslaginu, sem má sjá í spilaranum hér fyrir neðan, má meðal annars sjá Sigurstein hvetja sína menn til dáða í klefanum fyrir verkefnið ærna gegn strákunum hans Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach.

„Ég var aðeins að skoða þetta. Fjórir af tíu leikjahæstu leikmönnum FH frá upphafi [í Evrópukeppni] sitja hérna inni í þessum klefa. Fjöldinn allur hefur spilað yfir tuttugu leiki. Með öðrum orðum, það er massa reynsla hérna í bland við massa greddu. Nýir menn að stíga sín fyrstu skref á þessu sviði. Við ætlum að nýta okkur þetta; reynslu og greddu,“ sagði Sigursteinn meðal annars.

Klippa: Sigursteinn Arndal með hljóðnema á sér

FH-ingar létu þýska liðið hafa fyrir hlutunum en töpuðu á endanum með átta marka mun, 32-24.

FH tekur á móti Toulouse í lokaleik sínum í H-riðli Evrópudeildarinnar í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:45 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×