Körfubolti

Vaknaði með harð­sperrur: „Þetta var bara stór­kost­legt“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Körfuboltasérfræðingurinn Hermann Hauksson vaknaði með harðsperrur í morgun eftir áhorf gærkvöldsins.
Körfuboltasérfræðingurinn Hermann Hauksson vaknaði með harðsperrur í morgun eftir áhorf gærkvöldsins. Vísir

Fyrrum landsliðsmaðurinn Hermann Hauksson, sérfræðingur í Bónus Körfuboltakvöldi, lofar landsliðsmenn karla í hástert eftir frækinn sigur á Ítalíu ytra í gærkvöld. Sigurinn er ekki aðeins merkilegur, heldur einnig þýðingarmikill.

Hermann fylgdist með límdur við skjáinn, líkt og margur annar, þegar íslenska liðið mætti því ítalska í gær. Ísland hóf leikinn af gríðarmiklum krafti og náði snemma fínni forystu. Sterkt lið Ítala átti sínar rispur og vann sig inn í leikinn en alltaf áttu strákarnir okkar svar við þeirra áhlaupum. Aðspurður um hvernig honum hafi liðið við áhorfið segir Hermann:

„Mér leið alveg stórkostlega. Frá fyrstu mínútu fannst mér þeir koma ótrúlega einbeittir til leiks og þegar kom undir lokin var maður nú eiginlega hálf standandi síðustu fimm mínúturnar í þessum leik. Ég er eiginlega með harðsperrur í dag. En þetta var bara stórkostlegt. Allt við þennan leik var hrikalega vel framkvæmt.“

Með því stærsta sem Ísland hefur afrekað á körfuboltavelli

Ítalía mætti, í það minnsta á pappír, með sterkara lið til leiks í gær en í stórsigri þeirra á Íslandi á föstudagskvöldið var. Þeirra stærstu stjörnur, sem leika í EuroLeague, mættu til leiks í gær eftir að hafa verið fjarverandi þegar liðin mættust í höllinni.

Hermann segir þennan útisigur á fjórtánda besta liði heims, samkvæmt heimslista FIBA, vera ofarlega yfir þá bestu í sögunni.

„Ég held að þetta sé nú bara með því stærsta sem við höfum afrekað á körfuboltavelli sem landslið. Þetta er stórþjóð sem við erum að vinna þarna á útivelli. Við höfum unnið þá hérna heima áður en að vinna þá á útivelli, þar sem þeir tapa ekki mörgum leikjum og stemningin og annað slíkt sem myndast þarna á Ítalíu er mikil. Að sigla þessu í land eftir frekar slæman leik hérna heima um daginn sýnir þvílíkan styrk. Það voru ekki margir sem bjuggust við þessu,“ segir Hermann.

Lið sem á skilið að vera á EM

Sigurinn er ekki aðeins stór í sögulegu samhengi heldur einnig afskaplega mikilvægur fyrir íslenska liðið í sókninni eftir sæti á Evrópumótinu, EuroBasket. Ísland hefur ekki komist á EM síðan 2017.

Ísland er í þriðja sæti riðilsins með sex stig, tveimur á undan Ungverjum sem eru á botninum með fjögur. Tvö stig fást fyrir sigur en eitt fyrir tap.

Tyrkir og Ítalir eru þar fyrir ofan með sjö stig og eru bæði örugg á mótið. Þrjú efstu liðin fara á EM og ljóst að Íslandi dugar sigur gegn annað hvort Ungverjum ytra eða Tyrkjum heima í lokaleikjum riðilsins í febrúar til að komast á EM.

„Nú erum við bara með þetta í okkar höndum. Það er þannig sem ég veit að þessir strákar vilja hafa þetta. Leikurinn í Ungverjalandi í febrúar og hérna heima á móti Tyrkjum, þetta eru leikir sem að við eigum að geta unnið. Vonandi verða allir klárir í bátana og allir heilir á réttum tímapunkti. Ég veit að það er gríðarleg stemning innan hópsins og þetta er lið sem við þurfum að sjá á EuroBasket, þetta er bara það gott lið,“ segir Hermann, sem er faðir atvinnumannsins Martins Hermannssonar sem missti af Ítalíuleikjunum vegna meiðsla.

Martin er kominn á fullt á æfingum með liði sínu Alba Berlín í Þýskalandi og vonast til að hann geti tekið þátt í leikjunum í febrúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×