Innlent

Ný kosningaspá: Sjö flokkar sem næðu inn manni

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Flokksformenn bítast nú um hvert einasta atkvæði, enda styttist óðum í kosningadag.
Flokksformenn bítast nú um hvert einasta atkvæði, enda styttist óðum í kosningadag. vísir/vilhelm

Í nýrri kosningaspá Metils, sem tekur mið af nýjum fylgiskönnunum Maskínu og Prósent er Sjálfstæðisflokki spáð betra gengi en áður. Píratar næðu inn manni samkvæmt spánni, en ekki Vinstri græn eða Sósíalistaflokkur.

Kosningaspá Metils hefur vakið nokkurra athygli. Líkan Metils byggir á gögnum úr skoðanakönnunum en einnig kosningaúrslitum fyrri ára og sögulegum gögnum um áhrif efnahagsmála og árangur ríkisstjórnarflokka í kosningum auk fleiri þátta.

Nýjustu kannanir í spánni eru kannanir Maskínu og Prósent sem birtust í dag.metill

Á vef Metils segir að nýjustu kannanir hafi áhrif á kosningaspána. 

„Sömuleiðis hefur áhrif að fimm dagar eru frá síðustu uppfærslu líkansins og þar sem færri dagar eru til kosninga minnkar óvissan í líkaninu og vægi skoðanakannana eykst í spánni en vægi sögulegra gagna minnkar á móti. Helstu tíðindin í nýjustu uppfærslunni eru þau að Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu er spáð mestu fylgi, með 18% fylgi að miðgildi. Fylgi Viðreisnar gefur aðeins eftir, en þau mælast þó með 16% fylgi í miðgildisspánni. Flokkur fólksins heldur áfram að sækja aukið fylgi og er með 14% að miðgildi.“

Þingsætaspá.metill

Líklegast að sjö flokkar nái þingmönnum inn

Mesta spennan sé tengd 5% þröskuldinum, en flokkar sem ná því fylgi á landsvísu eiga rétt á jöfnunarþingmönnum. 

„Bæði Píratar og Sósíalistar hafa aukið líkur sínar á því að ná yfir þröskuldinn frá síðustu uppfærslu. Þó hvorugur flokkurinn mælist yfir 5% í miðgildisspánni (miðgildisspá Pírata er 5% eftir námundun) eru nokkrar líkur á að annar eða báðir flokkar nái þingmönnum. Líklegasta útkoman samkvæmt nýjustu spá er að sjö flokkar nái þingmönnum, en á því eru um það bil helmings líkur samkvæmt tölfræðilíkaninu okkar,“ segir á vef Metils. 

Mögulegar ríkisstjórnir.metill

Helstu óvissuatriðin í líkaninu á lokametrunum tengist Sósíalistaflokknum og Miðflokknum.

„Sósíalistaflokkurinn hefur aðeins boðið fram til þings einu sinni áður og því hefur líkanið minni upplýsingar um sögulegar mælingar á fylgi flokksins. Fylgi Miðflokksins hefur sveiflast mikið allt kjörtímabilið og því er vítt óvissubil um miðgildisspá flokksins. Sú óvissa kann að tengjast þeim fjölda kjósenda sem er að gera upp hug sinn milli Sjálfstæðisflokks og Miðflokks.

Þessar fylgissveiflur hafa auðvitað áhrif á þingmannafjölda og möguleg stjórnarmynstur líkt og sjá má neðar á síðunni. Alþingiskosningarnar 2024 verða æsispennandi og alls óvíst hver stendur uppi með pálmann í höndunum. Við stefnum að lokauppfærslu á kosningaspá Metils annað kvöld, þegar síðustu fylgiskannanir hafa verið birtar.“


Tengdar fréttir

Viðreisn stærst sam­kvæmt nýrri kosninga­spá en mjótt á munum

Viðreisn er orðin stærsti flokkurinn í nýrri kosningaspá Metils, en afar mjótt er á munum milli Viðreisnar, Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar, sem skipa annað og þriðja sætið. Gangi spáin eftir næðu Sósíalistar, Vinstri grænir, Píratar og Lýðræðisflokkurinn ekki á þing.

Sósíalistar mælast inni og Vinstri græn í lífshættu

Ekki mælist marktækur munur á fylgi Samfylkingarinnar og Viðreisnar í nýrri könnun Maskínu. Sósíalistar bæta við sig tveimur prósentustigum og Miðflokkurinn tapar rúmlega tveimur. Prófessor í stjórmálafræði segir Viðreisn bæði njóta fylgis sem komi frá Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki. Þá séu Vinstri græn í raunverulegri lífshættu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×