Laxahattar komnir aftur í tísku hjá háhyrningum Magnús Jochum Pálsson skrifar 2. desember 2024 23:24 Á vinstri hönd má sjá einn af háhyrningunum sem er byrjaður að synda um með lax á höfðinu. Á hægri hönd má sjá vöðu háhyrninga á veiðum. PWWA/Getty Háhyrningar eru aftur byrjaðir að synda um með laxa á höfðinu tæpum fjörutíu árum eftir að laxahattar komust í tísku á níunda áratugnum.
Vísindamenn í Washington-ríki greina frá þessu í samtali við New Scientist. Sést hafi til tveggja háhyrninga með laxa á hausnum í Pudget-sundi milli Bresku-Kólumbíu og Washington-ríkis í októbermánuði. Tískudellan hefur verið kölluð „dauði laxahatturinn“ vestanhafs. Talið er líklegt að háhyrningarnir séu ekki að nota laxinn einungis fyrir útlitið. Fiski-fylgihluturinn virðist þjóna margvíslegum tilgangi og meðal annars gera háhyrningunum kleift að fá sér snarl á meðan þeir ferðast um hafið. Tískudella sem lifði skammt er lifnuð við á ný Það sem er sérstaklega merkilegt við þessa laxahatta er að vísindamenn tóku fyrst eftir þeim árið 1987 þegar frumkvöðull, kvenkyns háhyrningur af vesturströndinni, tók upp á því að bera lax á hausnum. Á nokkrum vikum höfðu tveir aðrir háhyrningar, sem voru þekktir fyrir að vera bæði greindir og félagslyndir, tekið þátt í tískutrendinu. Á endanum var öll vaðan farin að ganga um með hatta. Hins vegar var tískudellan fljót að líða hjá og hættu laxahattarnir í tísku árið 1988. En tískan fer í hringi og í nóvember náðist ljósmynd af 32 ára karlkyns háhyrningi sem gengur undir nafninu J27 Blackberry með lax á höfðinu skammt frá Point No Point-tanga í Pudget-sundi. Óvenjumikið magn af laxi mögulega skýringin Vísindamenn geta ekki fyllilega skýrt hvað veldur þessari endurvakningu laxahattsins. „Í sannleika sagt höfum við ekki hugmynd um hvers vegna þetta byrjaði aftur og af hverju þetta gerist,“ sagði Deborah Giles, vísindakona sem leiðir vísindahópinn Wild Orca, í samtali við New Scientist. Ein möguleg skýring sem hefur verið nefnd er að laxahattarnir séu leið háhyrninganna til að eiga við matarskort á ákveðnum svæðum hafsins. Þannig nýtist laxinn eins og nesti. Önnur möguleg skýring er að þetta séu gáskafull viðbrögð við óvenjumiklu magni af löxum á svæðinu í ár. Ef háhyrningur er búinn að éta fylli sína af laxi gæti verið að hann vilji geyma afganginn á höfði sínu vegna þess að laxinn er of lítill og sleipur til að hægt sé að geyma hann undir uggunum. Sjá einnig: Háhyrningurinn losaði sig við kálfshræið Háhyrningar eru almennt taldir snjallar verur, sérstaklega þegar kemur að fæðuöflun. Þrátt fyrir það er tegundin í útrýmingarhættu. Það er því spurning hvort laxahattarnir séu áhrifaþáttur í að halda stofninum á lífi.
Hvalir Tíska og hönnun Dýr Bandaríkin Tengdar fréttir Hnýðingskálfur í fylgd með háhyrningum Dýraverndunarsamtökin Orca Guardians Iceland, sem berjast fyrir verndun háhyrninga við Íslands strendur, birtu í gær mynd af hnýðingskálfi í för með háhyrningum. Virtist sem svo að háhyrningarnir hefðu tekið kálfinn í fóstur um stund. 23. júlí 2023 08:19 Vilja vita af hverju háhyrningar forðist grindhvali við strendur Íslands Svo virðist sem að háhyrningar við Íslandsstrendur séu hræddir við grindhvalahvöður, ef marka má umfjöllun The Atlantic um samskipti þessara dýra við Íslandsstrendur. Vísindamenn sem rannsaka háhyrninga hér við land vilja vita hvað veldur. 3. október 2021 09:01 Háhyrningar elska hákarlalifur Nýsjálenskur vísindamaður segir að fullorðnir háhyrningar í mörgum háhyrningavöðum í heimshöfunum hafi lært að drepa hákarla til þess að éta úr þeim lifrina sem þeim þykir mesta lostæti. 27. nóvember 2009 16:45 Mest lesið Uppfyllti hinstu ósk ömmu sinnar Lífið Greiddi niður 16 milljón króna skuldir á tæpu ári Lífið Ítalskur heilafúi dreifir sér um heimsbyggðina Lífið Stóra stundin runnin upp hjá Sigrúnu Ósk Lífið „Afhverju myndi maður ekki vilja fara alla leið?“ Lífið Skipulögð glæpastarfsemi hjá GameTíví Leikjavísir Tilkynna leikara fyrir nýja Harry Potter þáttaröð Lífið Logi Þorvalds, Timothée Chalamet og Kylie í stuði á Coachella Lífið Sendi syninum stöðugt óbein skilaboð um að hann elskaði hann ekki Lífið Matargleði Evu: Dýrindis páskalamb Matur Fleiri fréttir Gærurnar verða að hátísku Húsfyllir þegar tískusýning tók yfir Ásmundarsal Sjáðu tískusýningu heitustu hönnuða framtíðarinnar Skúli Mogensen, Andri Snær og Sandra Barilli í stuði Troðfullt á opnun hjá ofurskvísum Héldu að hún væri rokkstjarna eða gift ríkum gaur Biður drottninguna að blessa heimilið Krotaði á átta milljón krónu tösku móður sinnar Orðin þrítug og nennir ekkert að pæla í áliti annarra Versace stígur til hliðar eftir áratugastarf Hátísku-Laufey á fremsta bekk í París „Bara gaman þegar fólk er í sjokki yfir okkur“ Enginn nakinn á Óskarnum Sjá meira
Hnýðingskálfur í fylgd með háhyrningum Dýraverndunarsamtökin Orca Guardians Iceland, sem berjast fyrir verndun háhyrninga við Íslands strendur, birtu í gær mynd af hnýðingskálfi í för með háhyrningum. Virtist sem svo að háhyrningarnir hefðu tekið kálfinn í fóstur um stund. 23. júlí 2023 08:19
Vilja vita af hverju háhyrningar forðist grindhvali við strendur Íslands Svo virðist sem að háhyrningar við Íslandsstrendur séu hræddir við grindhvalahvöður, ef marka má umfjöllun The Atlantic um samskipti þessara dýra við Íslandsstrendur. Vísindamenn sem rannsaka háhyrninga hér við land vilja vita hvað veldur. 3. október 2021 09:01
Háhyrningar elska hákarlalifur Nýsjálenskur vísindamaður segir að fullorðnir háhyrningar í mörgum háhyrningavöðum í heimshöfunum hafi lært að drepa hákarla til þess að éta úr þeim lifrina sem þeim þykir mesta lostæti. 27. nóvember 2009 16:45