Formúla 1

Heima­völlur heims­meistarans tekinn af dag­skrá

Aron Guðmundsson skrifar
Verstappen endaði í 2.sæti í hollenska kappakstrinum fyrr a yfirstandandi tímabili. Hann fær nú tvö tækifæri til viðbótar til að bera sigur úr býtum í heimakappakstrinum í Formúlu 1
Verstappen endaði í 2.sæti í hollenska kappakstrinum fyrr a yfirstandandi tímabili. Hann fær nú tvö tækifæri til viðbótar til að bera sigur úr býtum í heimakappakstrinum í Formúlu 1 Vísir/Getty

Hollenski kappaksturinn í Formúlu á Zandvoort brautinni verður tekinn af keppnisdagatali mótaraðarinnar eftir tímabilið 2026.

Þetta hefur verið staðfest af forráðamönnum Formúlu 1 en þar með er ljóst að heimavöllur ríkjandi heimsmeistara ökuþóra, Hollendingsins Max Verstappen, verður ekki hluti af mótaröðinni. 

Gríðarleg stemning hefur myndast á hollenska kappakstrinum undanfarin tímabil og er hægt að rekja það til góðs gengis Verstappen sem hefur borið höfuð og herðar yfir keppinauta sína í Formúlu 1 og tryggt sér heimsmeistaratitilinn fjögur ár í röð.

Appelsínugult haf áhorfenda er fastur liður á hollenska kappakstrinum þar sem að mikill meirihluti áhorfenda er á bandi heimamannsins Max VerstappenVísir/Getty

Það var árið 2021 sem ákveðið var að Formúlu 1 kappakstur myndi á nýjan leik fara fram á Zandvoort brautinni en þá hafði keppninnar ekki notið við í um þrjátíu og fimm ár. 

Núverandi tímabil í Formúlu 1 mótaröðinni samanstendur af tuttugu og fjórum keppnishelgum og er það mat ökuþóra að það sé helst til of mikið. Forráðamenn Formúlu 1 hafa hins vegar látið þær gagnrýnisraddir sem vind um eyru þjóta og eru þeir með til skoðunar að koma á keppnishelgi í Afríku í náinni framtíð. 

Síðasta keppnishelgi yfirstandandi Formúlu 1 tímabils fer fram um komandi helgi. Verstappen hefur nú þegar tryggt sér heimsmeistaratitilinn í flokki ökuþóra en spennan er mikil í flokki bílasmiða þar sem að aðeins tuttugu og eitt stig skilja að lið McLaren og Ferrari þegar að fjörutíu og fjögur stig að hámarki eru eftir í pottinum fyrir hvert lið. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×