Erlent

Heitir því að klára kjör­tíma­bilið og skammast út í þing­menn

Samúel Karl Ólason skrifar
Emmanuel Macron, forseti Frakklands.
Emmanuel Macron, forseti Frakklands. EPA/TERESA SUAREZ

Emmanuel Macron, forseti Frakklands, segist ekki ætla að segja af sér og heitir því að sitja út kjörtímabil sitt til ársins 2027. Þá segist hann ætla að tilnefna nýjan forsætisráðherra á næstu dögum.

Ríkisstjórn Michel Barnier, forsætisráðherra Frakklands, var felld með vantrauststillögu á franska þinginu í gær þegar bæði vinstri og hægri vængir þingsins tóku höndum saman. Var það eftir að Barnier þvingaði óvinsælt fjárlagafrumvarp gegnum þingið án atkvæðagreiðslu þar.

Franskir þingmenn hafa í kjölfarið kallað eftir því að Macron segi af sér og boði til kosninga. Þannig sé best að binda enda á þá pólitísku óreiðu sem einkenni Frakkland þessa dagana.

Sjá einnig: Franska ríkisstjórnin fallin

Macron ávarpaði frönsku þjóðina í kvöld þar sem hann gagnrýndi þá þingmenn sem felldur ríkisstjórnina í gær slíkt hafði ekki gerst í Frakklandi frá 1968.

Hann sakaði stjórnarandstöðuna um að hafa tekið markvissa ákvörðun um að valda óreiðu og sagði þingmenn hafa hagað sér með óábyrgum hætti, samkvæmt frétt France24.

Þá sagði Macron að sérstakt frumvarp um skattheimtu yrði lagt fyrir þingið seinna í þessum mánuði til að koma í veg fyrir stöðvun ríkisrekstursins. Síðan yrði það verk nýrrar ríkisstjórnar að semja fjárlög fyrir næsta ár.

Hver sem verður fyrir valinu mun hafa það verkefni að leiða minnihlutaríkisstjórn í Frakklandi þar sem enginn flokkur eða fylking hefur meirihluta. Það tók Macron tvo mánuði að velja Barnier eftir kosningarnar í júní, þar sem flokkur forsetans missti mikið fylgi.

Macron sagðist ætla að funda með pólitískum leiðtogum Frakklands á morgun með því markmiði að finna leið framávið. Í lok ræðu sinnar kallaði hann eftir visku, samstöðu og von.

Áhugasamir geta séð ræðu Macrons þar sem túlkur talar ensku, hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×