Fótbolti

Telja enn 92 prósent líkur á að Víkingar komist á­fram

Sindri Sverrisson skrifar
Víkingar hafa verið frábærir í Sambandsdeild Evrópu en urðu að sætta sig við naumt tap í gær.
Víkingar hafa verið frábærir í Sambandsdeild Evrópu en urðu að sætta sig við naumt tap í gær. vísir/Anton

Víkingur er jafn Panathinaikos í 18.-19. sæti af 36 liðum Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta nú þegar aðeins lokaumferðin er eftir næsta fimmtudag. Yfirgnæfandi líkur eru taldar á því að liðið komist áfram í keppninni og spili í umspili í febrúar.

Þrátt fyrir svekkjandi tap gegn Djurgården í gær eru enn taldar 92 prósent líkur á því að Víkingar komist í umspil Sambandsdeildarinnar, og myndu þannig halda áfram að skrá nýja kafla í sögu Íslands í Evrópukeppnum.

Stig gegn Djurgården í gær hefði gulltryggt Víkinga áfram en þeir eru núna með sjö stig í 18.-19. sæti. Sjö stig gætu vel dugað til að komast áfram en stig í Austurríki næsta fimmtudag myndi taka af allan vafa fyrir Víkinga.

Efstu átta lið deildarinnar komast beint áfram í 16-liða úrslit og er orðið útilokað að Víkingur verði í þeim hópi.

En liðin í 9.-24. sæti fara í umspil í febrúar um að komast í 16-liða úrslitin. Víkingar mega því alls ekki dragast niður í 25. sæti í lokaumferðinni næsta fimmtudag, þegar þeir sækja LASK heim til Austurríkis. Hér má finna stöðuna í Sambandsdeildinni.

Liðin í 25.-31. sæti eru með fjögur stig hvert og geta því enn náð Víkingi að stigum, sem og liðin í 20.-24. sæti.

Á vef UFEA er hægt að setja inn möguleg úrslit í lokaumferðinni og skoða hvernig lokastaðan yrði, með því að smella hér.

Twitter-síðan Football Meets Data segir að 10.000 hermanir sýni að 92 prósent líkur séu á að Víkingur endi á meðal 24 efstu liða deildarinnar. Mögulegt er að það ráðist á markatölu.

Líkur hvers liðs á að enda í hópi átta efstu, eða í hópi 24 efstu liða Sambandsdeildarinnar. Efstu átta komast beint í 16-liða úrslit en liðin í 9.-24. sæti fara í umspil. Liðin í 25.-36. sæti falla úr keppni.Twitter/@fmeetsdata

Ef Víkingar komast áfram myndi langt tímabil þeirra lengjast enn og félagið þurfa að biðja Breiðablik um frekara lán á Kópavogsvelli í umspilinu, sem fram fer 13. og 20. febrúar. Dregið verður í umspilið næsta föstudag.

Það gæti skipt máli fyrir Víkinga að ná góðum úrslitum í Austurríki og komast í hóp liðanna í 9.-16. sæti, því þau verða í efri styrkleikaflokki þegar dregið verður í umspilið en liðin í 17.-24. sæti í neðri flokki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×