Körfubolti

Borche vill aftur með ÍR í úr­slita­ein­vígið: „Tel okkur geta valdið usla“

Aron Guðmundsson skrifar
Borche Ilievski er mættur aftur í Breiðholtið og ÍR blómstrar undir hans stjórn
Borche Ilievski er mættur aftur í Breiðholtið og ÍR blómstrar undir hans stjórn Vísir/Anton Brink

Í til­raun sinni til að hleypa fersku lífi í karlalið ÍR í körfubolta ákváðu forráða­menn félagsins að ráðast í þjálfara­breytingar og ráða inn gamlan vin, Borche Ili­evski. Hann hefur aðeins eitt mark­mið í huga. Að koma ÍR aftur í úr­slita­ein­vígi efstu deildar.

ÍR hefur nú unnið fjóra leiki í röð í Bónus deildinni gegn Njarðvík, Val, KR og nú síðast Hött. Með því hefur liðið lyft sér upp úr fallsæti og nær sæti í úr­slita­keppni. 

Endur­koma Borche, sem stýrði ÍR við góðan orðstír yfir sjö ára tíma­bil sem stóð til ársins 2021 virðist hafa kveikt neista í Breiðholtinu. Liðið er að sækja úr­slit og það á undan áætlun.

„Til­finningin sem fylgir því að koma aftur til ÍR, sem ég segi að sé mitt lið, er frábær,“ segir Borche í viðtali sem var tekið við hann á miðvikudaginn síðastliðinn og sýnt í Sportpakkanum í gær fyrir leik ÍR gegn Hetti á Egilsstöðum sem endaði með sigri ÍR. 

„Ég trúi því að við getum náð í góð úr­slit. En ég bjóst ekki við því að þau myndu skila sér strax í upp­hafi okkar veg­ferðar saman. Núna tel ég okkur á réttri leið. Vonandi getum við haldið áfram á þeirri leið.“

„Auðvitað á þessi sjokk­með­ferð sinn þátt í þessu. Þegar skipt er um þjálfara vakna leik­menn og stíga upp. Þeir hafa sýnt það. Við þurfum bara að halda áfram með sama orku­stig. Við höfum bætt við nýjum leik­mönnum á borð við Björg­vin Hafþór og Dani og það er klár­lega jákvæð orka í kringum liðið þessa stundina. Við þurfum að halda því þannig það sem eftir lifir tíma­bils.“

„Tel okkur geta valdið usla“

ÍR komst alla leið í oddaleik úr­slita­ein­vígis efstu deildar undir stjórn Borche árið 2019 og hann er ekki að snúa aftur í Breiðholtið ein­göngu til að forða liðinu frá falli.

„Ég hef trú á þessu liði. Ég kem aftur til ÍR með aðeins eitt mark­mið í huga. Að eiga tækifæri á því að fara með liðið aftur í úr­slita­ein­vígi deildarinnar. Það er mitt mark­mið. Sem þjálfari mun ég þrýsta á lið mitt að taka fram­fara­skref eins og ég get. Það er gott jafn­vægi í hópnum þessa stundina. Ég tel okkur geta valdið usla það sem eftir lifir tíma­bils. Við höfum unnið nokkra leiki en erum samt langt frá okkar mark­miði. Við þurfum því að halda áfram að leggja hart að okkur. Gefa allt okkar í þessa leiki sem eftir eru.“

Borche segir stuðningsmenn ÍR þá bestu. Eitt er víst. Þeir mæta með fjörið á leiki og hafa hátt.Vísir/Daníel Þór

„Stuðningsmenn ÍR þeir bestu“

Það er rómantík fólgin í því fyrir bæði Borche og ÍR að endur­nýja kynnin. Byrjunin frábær.

„Ég man klár­lega eftir þessum góðu stundum sem ég átti hjá félaginu yfir þessi sjö ár sem ég átti með félaginu á sínum tíma, sér í lagi man maður eftir úr­slita­ein­víginu gegn KR. Það er mín til­finning að stuðnings­menn liðsins séu að styðja fastar við bakið á okkur eftir því sem líður á. Þeir finna orkuna í kringum liðið. Lið sem ætlar sér að ná árangri verður að eiga að góða stuðnings­menn og ég tel stuðnings­menn ÍR þá bestu. Þeir ýta við okkur með sinni orku, leik­mennirnir finna fyrir því og á sama tíma verða stuðnings­mennirnir varir við það sem leik­mennirnir eru að leggja að mörkum inn á vellinum.“

Úrslitaeinvígi ÍR og KR árið 2019 fór alla leið í oddaleik þar sem að KR stóð á endanum uppi sem Íslandsmeistari.Vísir/Vilhelm

„Mun reyna allt mitt“

Hann segir efstu deild ekki hafa breyst það mikið síðan að hann stýrði liði þar síðast.

„Sum lið eru að leggja meira í þetta, stundum of mikið. Ég tel deildina ekki hafa breyst of mikið frá því að ég var hér síðast. Valur hefur verið mjög sigursælt undan­farin ár. Kefla­vík hefur verið að koma til baka með fjár­festingu og teflir alltaf fram sterku liði líkt og Tindastóll. Svo ertu með lið eins og Þór Þor­láks­höfn sem að sýnir alltaf metnað til að gera vel og sækja að toppnum. Bara eins og öll önnur lið. Það eru allir að reyna ná sem lengst, allir sem hafa það mark­mið að ná í úr­slita­keppnina og sækja að titlinum. 

ÍR er klár­lega eitt þeirra liða. Ég mun reyna allt mitt, sem þjálfari að hvetja minn hóp til að standa saman og berjast. Við höfum unnið nokkra leiki en erum samt langt frá okkar mark­miði. Við þurfum því að halda áfram að leggja hart að okkur. Gefa allt okkar í þessa leiki sem eftir eru.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×