Innlent

Brotist inn og hjóli stolið fyrir tvær milljónir

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Innbrotum í reiðhjólaverslanir hefur fjölgað. Dæmi eru um að erlend glæpagengi greiði Íslendingum fyrir slíkan verknað í von um að koma þeim út fyrir landssteinanna.
Innbrotum í reiðhjólaverslanir hefur fjölgað. Dæmi eru um að erlend glæpagengi greiði Íslendingum fyrir slíkan verknað í von um að koma þeim út fyrir landssteinanna. Vísir/Samsett

Brotist var inn í íþróttavöruverslunina Sportís í Skeifunni í nótt og varningi stolið fyrir tæplega tvær milljónir króna.

Hlynur Skúli Skúlason, sölustjóri Sportís, segir að sítt eigið hjól hafi verið tekið ófrjálsri hendi sem var í verslunarrýminu. Um er að ræða grænt hjól af gerðinni Pivot Shuttle LT Team. Á heimasíðu framleiðandans er nýtt slíkt hjól falt fyrir fimmtán þúsund Bandaríkjadali sem jafngilda rétt rúmum tveimur milljónum íslenskra króna.

Hjólahvíslarinn kominn í málið

Auk þess tók þjófurinn bakpoka úr versluninni og fyllti hann af íþróttafatnaði. Ránið átti sér stað um fjögurleytið í nótt en auk hjólsins tók þjófurinn bakpoka úr versluninni og fyllti hann af íþróttafatnaði. Lögreglu gert viðvart skömmu síðar sem kom á vettvang og tók skýrslu.

Færslu sem Hlynur Skúli birti á Facebook til að lýsa eftir hjólinu hefur verið dreift víða um miðilinn og af færslum á hópnum Hjóladót tapað, fundið eða stolið og fleira má sjá að Bjartmar Leósson, betur þekktur sem hjólahvíslarinn, er kominn í málið.

„Ef að hann finnur ekki hjólið þá held ég að það finni það enginn,“ segir Hlynur í samtali við fréttastofu.

Faraldur innbrota í hjólreiðaverslanir

Brotist hefur verið inn í fjölmargar reiðhjólaverslanir á árinu eins og Stöð 2 og Vísir hafa fjallað um. Lögreglan hefur sagt að algengt sé að erlendir glæpahópar greiði Íslendingum fyrir að ræna verslanir og að dæmi séu um að reynt sé svo að senda þýfið úr landi.

Undanfarna mánuði hefur verið brotist inn í verslanir Púkans, Pelaton, Arnarins, Kríunnar og TRI í tvígang.


Tengdar fréttir

Erlend glæpagengi fá Íslendinga til að ræna reiðhjólaverslanir

Brotist hefur verið inn í fjölmargar reiðhjólaverslanir á árinu, síðast fyrir helgi. Lögreglumaður segir innbrot í slíkar verslanir nokkuð ný af nálinni. Algengt sé að erlendir glæpahópar greiði Íslendingum fyrir að ræna verslanir og dæmi um að reynt hafi verið að senda þýfið úr landi.

Faraldur innbrota í hjólreiðabúðir

Fjölmörg innbrot í hjólabúðir hafa verið gerð undanfarnar vikur og mánuði. Þjófar virðast samt hafa lítið upp úr innbrotunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×