Fótbolti

Mikael Egill skoraði í grát­legu jafn­tefli gegn Juventus

Smári Jökull Jónsson skrifar
Mikael Egill skoraði fyrra mark Venezia í dag og er hér að berjast gegn Timothy Weah.
Mikael Egill skoraði fyrra mark Venezia í dag og er hér að berjast gegn Timothy Weah. Vísir/Getty

Mikael Egill Ellertsson skoraði fyrra mark Venezia þegar liðið gerði jafntefli við stórlið Juventus í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Botnlið Venezia var grátlega nálægt því að fara með sigur af hólmi.

Mikael Egill var í byrjunarliði Venezia í kvöld sem lenti snemma í brekku þegar Federico Gatti kom heimaliði Juventus í forystuna strax á 19. mínútu leiksins. Fyrir leikinn var Juventus í 6. sæti deildarinnar en Venezia í neðsta sætinu.

Í síðari hálfleik náðu gestirnir að snúa við blaðinu. Mikael Egill jafnaði metin á 61. mínútu þegar hann skoraði með góðum skalla eftir sendingu frá Francesco Zampano. Þetta er annað mark Mikaels Egils í Serie A-deildinni á tímabilinu en hann skoraði einnig í 2-2 jafntefli gegn Monza fyrr á tímabilinu.

Gestirnir í Venezia létu hins vegar ekki þar við sitja. Þeir náðu 2-1 forystu með marki Jay Idzes á 83. mínútu en Mikael Egill var tekinn af velli tveimur mínútum fyrr.

Það stefndi allt í magnaðan sigur botnliðs Venezia en á síðustu sekúndum uppbótartímans jafnaði Dusan Vlahovic fyrir Juventus úr vítaspyrnu og tryggði liðinu jafntefli.

Venezia er því áfram í botnsæti deildarinnar með 10 stig, jafnmörg stig og lið Monza. Juventus er áfram í 6. sæti með 28 stig.

Mikael Egill verst gegn Dusan Vlahovic í leiknum í kvöld.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×