Enski boltinn

Nunes valinn maður leiksins hjá BBC

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, hughreystir Matheus Nunes eftir leikinn gegn Manchester United.
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, hughreystir Matheus Nunes eftir leikinn gegn Manchester United. getty/Martin Rickett

Þrátt fyrir að hafa gert sig sekan um slæm mistök í leik Manchester City og Manchester United var Matheus Nunes valinn besti maður City í leiknum hjá BBC.

Þegar fimm mínútur voru eftir af Manchester-slagnum á Etihad í gær leiddi City, 1-0. Nunes átti þá slaka sendingu til baka á markvörðinn Ederson. Amad Diallo komst inn í sendinguna og Nunes braut svo á honum og vítaspyrna var dæmd. 

Bruno Fernandes fór á punktinn, skoraði og jafnaði í 1-1. Diallo skoraði svo sigurmark United skömmu síðar.

Þrátt fyrir mistökin stóru fékk Nunes 9,22 í einkunn fyrir frammistöðu sína hjá BBC. Það voru þó ekki blaðamenn breska ríkisútvarpsins sem gáfu honum þá einkunn heldur var þetta meðaltal einkunna lesenda vefsíðu BBC. 

Ætla má að kátir stuðningsmenn United hafi verið duglegir að gefa Nunes háa einkunn enda átti hann stóran þátt í sigri Rauðu djöflana.

City gengur allt í mót þessa dagana og hefur aðeins unnið einn af síðustu ellefu leikjum sínum. Liðið er í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 27 stig, níu stigum á eftir toppliði Liverpool.


Tengdar fréttir

Sendi Walker pillu: „Óskarinn fer til ...“

Rasmus Højlund, framherji Manchester United, gat ekki stillt sig um að senda Kyle Walker, varnarmanni Manchester City, tóninn eftir leik liðanna á Etihad í gær.

„Ég er ekki að standa mig vel“

Pep Guardiola var ómyrkur í máli á blaðamannafundi eftir tapið gegn Manchester United í dag. Hann viðurkenndi að vera í vandræðum að finna lausnir á vandamálum City.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×