Fótbolti

Klopp slapp við að reka fyrrum að­stoðar­manninn

Valur Páll Eiríksson skrifar
Klopp og Lijnders (t.h.) þegar allt lék í lyndi. Klopp slapp við að eiga erfitt samtal við fyrrum aðstoðarmann sinn, en hann tekur til starfa hjá Red Bull um áramótin.
Klopp og Lijnders (t.h.) þegar allt lék í lyndi. Klopp slapp við að eiga erfitt samtal við fyrrum aðstoðarmann sinn, en hann tekur til starfa hjá Red Bull um áramótin. Mike Hewitt/Getty Images

Hollendingurinn Pep Lijnders hefur verið rekinn úr starfi þjálfara Red Bull Salzburg eftir slakt gengi. Lijnders entist aðeins örfáa mánuði í starfi.

Lijnders fékk sénsinn hjá Salzburg eftir að hafa sagt upp samhliða Klopp hjá Liverpool í sumar. Þetta er annað aðalþjálfarastarf Hollendingsins en honum gekk ekki vel sem stjóri NEC Nijmegen í Hollandi árið 2018.

Hann var aðstoðarþjálfari Klopp frá 2015 til 2018. Í janúar 2018 tók hann við NEC en mistókst að stýra liðinu upp í efstu deild og rekinn í maí sama ár. Hann var endurráðinn í teymi Klopps sumarið 2018 og var aðstoðarþjálfari hans við góðar orðstír þar til í sumar.

Þónokkur lið eru sögð hafa falast eftir kröftum þessa 41 árs Hollendings en öðru sinni gekk illa sem aðalþjálfari. Salzburg hafði unnið deildina austurrísku 10 ár í röð þar til Sturm Graz varð meistari síðasta vor.

Gengið hefur verið brösuglegt á miðað við það sem menn hjá Salzburg eru vanir. Liðið situr í fimmta sæti með 26 stig, tíu stigum frá toppnum. Þá hefur Salzburg tapað fimm af sex leikjum í Meistaradeild Evrópu.

Lijnders var því sagt upp störfum í dag. Klopp slapp við að segja fyrrum starfsfélaga sínum upp en hann tekur til starfa sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Red Bull-samsteypunni um áramótin. Red Bull rekur knattspyrnulið í Leipzig, New York og Brasilíu auk Salzburgar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×