Talsverðar væntingar voru gerðar til Skotans Menzies sem er í 39. sæti heimslistans á meðan Gates, sem er 54 ára Bandaríkjamaður, er í 130. sæti hans.
Menzies náði sér ekki á strik í leiknum og tapaði, 3-1. Hann átti erfitt með að leyna vonbrigðum sínum og felldi tár á sviðinu.
Eftir tapið fyrir Gates birti Menzies mynd af sér við hlið föður síns á sjúkabeði. „Ég vildi ekki birta þetta ... pabbi minn, hetjan mín,“ skrifaði Menzies við myndina sem hann hefur nú eytt.
Kærasta Menzies, Fallon Sherrock, mætir Ryan Meikle í dag. Sigurvegarinn úr þeim leik mætir Luke Littler.
Gerwyn Price, heimsmeistarinn frá 2021, vann öruggan sigur á Keane Barry, 3-0, í gærkvöldi.