Viðskipti innlent

Tvö ráðin til Klaks

Árni Sæberg skrifar
Atli og Jóhanna Soffía eru nýjustu starfsmenn Klaks.
Atli og Jóhanna Soffía eru nýjustu starfsmenn Klaks. Klak

Klak - Icelandic Startups hefur ráðið til sín tvo nýja starfsmenn sem munu styrkja teymið og efla stuðninginn við frumkvöðla og sprotafyrirtæki á Íslandi. Jóhanna Soffía Sigurðardóttir og Atli Björgvins koma með breiðan bakgrunn og fjölbreytta reynslu sem mun gagnast í áframhaldandi uppbyggingu Klaks.

Í fréttatilkynningu segir að Jóhanna Soffía sé með mikla reynslu í fjármálum og verkefnastjórnun og hafi unnið við stefnumótun, þróun og tengslamyndun innan fyrirtækja og stofnana. Hún hafi einnig reynslu af ráðgjöf og kennslu, auk þess að hafa gegnt lykilhlutverki í ýmsum þróunarverkefnum á íslenskum vinnumarkaði. 

Atli Björgvins hafi áralanga reynslu af markaðs- og frumkvöðlastarfi, auk þess að hafa sinnt kennslu í nýsköpun og markaðsfræðum við Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Bifröst. Hann hafi komið að fjölbreyttum verkefnum innan sprotafyrirtækja og unnið sem ráðgjafi í markaðssetningu fyrir bæði innlend og alþjóðleg fyrirtæki. Með Jóhönnu og Atla um borð muni Klak styrkja stöðu sína og veita betri stuðning til þeirra sprota sem það þjónar.

„Það er mikill fengur að fá Jóhönnu og Atla í teymið okkar. Þau koma bæði með einstaka þekkingu, reynslu og sýn sem mun styðja við markmið okkar um að skapa öflugt stuðningsumhverfi fyrir nýsköpun og sprotafyrirtæki,“ er haft eftir Ástu Sóllilju Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Klak.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×