Innlent

Ráðist á ferða­mann í borginni

Atli Ísleifsson skrifar
Árásarmaðurinn var handtekinn skammt frá vettvangi.
Árásarmaðurinn var handtekinn skammt frá vettvangi. Vísir/Vilhelm

Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til eftir að ferðamaður hafði orðið fyrir líkamsárás í Reykjavík í gær.

Frá þessu segir í tilkynningu lögreglunnar þar sem segir frá verkefnum gærkvöldsins og næturinnar. Fram kemur að árásarmaður hafi verið handtekinn skammt frá vettvangi og sé hann nú vistaður í þágu rannsóknar málsins. Ekki er tekið fram hvar árásin átti sér stað en málið var skráð á svæði lögreglustöðvar 1 sem nær yfir miðborgina, Vesturbæ og Austurbæ.

Í tilkynningunni segir einnig frá því að tilkynnt hafi verið um þjófnað í tveimur verslunum í umdæminu og hafi málin í báðum tilfellum verið leyst á vettvangi.

Þá var ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og var hann látinn laus eftir hefðbundið ferli.

Um klukkan fimm í morgun gistu tveir fangageymslu lögreglu, en alls voru bókuð 56 mál í kerfum lögreglu milli klukkan 17 í gær og fimm í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×