Innlent

Það bráð­vantar börn á leik­skólann á Hvann­eyri

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Stefán Broddi segir að það bráðvanti börn í leikskólann á Hvanneyri en þar er fínn leikskóli. Hægt er að fá lóðir á staðnum vilji fólk byggja og flytja þangað með börnin sín.
Stefán Broddi segir að það bráðvanti börn í leikskólann á Hvanneyri en þar er fínn leikskóli. Hægt er að fá lóðir á staðnum vilji fólk byggja og flytja þangað með börnin sín. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Fjárhagsstaða Borgarbyggðar er góð enda er búið að framkvæma mikið á árinu og nýtt ár verður líka mikið framkvæmdarár. Nú er til dæmis verið að endurbyggja grunnskólann á Kleppjárnsreykjum en á sama tíma bráðvantar börn á leikskólann á Hvanneyri.

Borgarbyggð er stórt og víðfeðmt sveitarfélag en íbúar skiptast nokkuð jafnt, sem búa í þéttbýlinu í Borgarnesi og svo í dreifbýlinu. Framkvæmdir fara nú að hefjast við byggingu nýs fjölnotaíþróttahúss í Borgarnesi, sem verður fyrst og fremst knatthús og svo eru heilmiklar aðrar framkvæmdir í gangi eða eru að fara af stað á nýju ári.

Stefán Broddi Guðjónsson er sveitarstjóri Borgarbyggðar.

„Árið hefur gengið vel en vissulega hefur þetta verið heilmikið framkvæmdaár nú þegar. Við erum í endurbyggingu að hluta skóla húsnæðisins á Kleppjárnsreykjum, þannig að þar er verið að endurbyggja skólann og síðan hefur verið töluverð uppbygging í gatnagerð hjá okkur og við erum mjög von góð með það að fljótlega á nýju ári verði töluvert framboð á nýjum lóðum þá bæði í Borgarnesi og svo auðvitað eru nýjar lóðir til úthlutunar á Hvanneyri. Á Hvanneyri erum við á þeim stað að okkur bráðvantar krakka á leikskólann,“ segir Stefán Broddi.

Stefán Broddi segist vera mjög vongóður um að íbúum Borgarbyggðar fjölgi jafn og þétt enda dásamlegt að búa í sveitarfélaginu.

Er ykkur að fjölga eða fækka eða hvað?

„Bæði árin tuttugu og tvö og tuttugu og þrjú þá fjölgaði íbúum sveitarfélagsins um tæp sex prósent hvort ár þannig að það var mjög krafmikil fjölgun síðastliðin tvö ár. Á þessu ári er okkur að fjölga í takt við það sem gerist á landinu eða um tvö prósent.“

Stefán Broddi Guðjónsson, sem er sveitarstjóri Borgarbyggðar. Nýtt ár leggst vel í hann og íbúa sveitarfélagsins.Aðsend

En hvernig leggst nýtt ár, 2025 í íbúa Borgarbyggðar?

„Ég held að árið leggist nokkuð vel í íbúa hér, þannig að já, ég held að við göngum bara nokkuð vongóð inn í nýtt ár,“ segir Stefán Broddi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×