Körfubolti

Kostaði hann fjór­tán milljónir að nota f-orðið í við­tali

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anthony Edwards fór yfir strikið í viðtali eftir sigur Minnesota Timberwolves á dögunum.
Anthony Edwards fór yfir strikið í viðtali eftir sigur Minnesota Timberwolves á dögunum. Getty/Alex Slitz

Bandaríski körfuboltamaðurinn Anthony Edwards fékk stóra sekt frá NBA deildinni eftir viðtal sem hann veitti eftir leik á dögunum.

Edwards, sem spilar með Minnesota Timberwolves, fór í viðtalið afdrifaríka eftir sigurleik á móti Houston Rockets.

NBA deildin sektaði hann um hundrað þúsund Bandaríkjadali eða rúmar 13,9 milljónir króna fyrir að blóta í viðtalinu.

Hann sagði nákvæmlega: „I don’t do overtime, so f*** it“ í þessu sjónvarpsviðtali eftir sigur í spennuleik. Það er f-orðið sem fór fyrir brjóstið á meðlimum aganefndar deildarinnar.

F-orðið kostaði hann næstum því fjórtán milljónir íslenskra króna.

Edwards fær 42,2 milljónir dollara í laun fyrir þetta tímabil eða rúma 5,8 milljarða í íslenskum krónum. Hann hefur því alveg efni á því að borga sektina.

Edwards er með 25,3 stig, 5,5 fráköst og 4,0 stoðsendingar í leik á tímabilinu en í þessum sigurleik á Houston var hann með 24 stig og fjóra þrista.

Þessi öflugi leikmaður hefur reyndar verið mjög duglegur að næla sér í sektir á þessu tímabili en NBA deildin hefur alls sektað hann um 225 þúsund dali eða tæpar 32 milljónir króna.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×