Innlent

Yfir tvö hundruð skjálftar hjá Eld­ey

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Eyjan Eldey er á Reykjaneshryggnum.
Eyjan Eldey er á Reykjaneshryggnum. Vísir/Egill Aðalsteinsson

Um tvö hundruð skjálftar hafa mælst norðaustan við Eldey á Reykjaneshrygg. Náttúruvársérfræðingur telur skjálftahrinuna vera að líða undir lok.

Jarðskjálftahrinan hófst aðfaranótt 29. desember. Stærstu skjálftarnir mældust í gær, annar 3,2 og hinn 3,6. 

„Það virðist aðeins vera að hægja á henni núna,“ segur Steinunn Helgadóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Í kringum tvö hundruð skjálftar hafa mælst frá upphafi hrinunnar.

Að sögn Steinunnar eiga slíka skjálftahrinur sér oft stað á þessu svæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×