Sport

Sló út uppáhaldsspilara sonar síns

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stephen Bunting með syni sínum Tobias eftir sigur á móti á síðasta ári.
Stephen Bunting með syni sínum Tobias eftir sigur á móti á síðasta ári. Getty/Rob Newell

Sephen Bunting tryggði sér sæti í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í pílukasti í gær og mætir Luke Littler í undanúrslitum í kvöld. Það eru þó kannski ekki allir á heimilinu jafnánægðir með sigurinn.

Bunting vann 5-2 sigur á Peter Wright í átta manna úrslitunum eftir að hafa komist 4-0 yfir í leiknum.

Eftir leikinn sagði Bunting frá athyglisverðri staðreynd um son sinn.

„Ég var mjög stressaður í bakherberginu, var eiginlega alveg á brúninni. Peter Wright er mjög vinsæll og líka mjög góður vinur minn. Hann er líka uppáhaldsspilari sonar míns þannig að ég finn til með syni mínum núna,“ sagði Sephen Bunting. 

Tobias sonur hans er tólf ára gamall og hefur mjög gaman að pílukasti eins og faðir sinn.

„Ég er samt svo ánægður að hafa komist yfir þennan þröskuld. Áhorfendur voru ótrúlegir í fyrstu fjórum settunum en þú verður að gera enn betur,“ sagði Bunting en Wright kom sér aftur inn í leikinn með því að vinna tvö sett í röð.

„Ég vissi að ég var mjög stjórnina á leikum en Peter var að koma til baka. Ég hugsaði með mér að bregðast ekki sjálfum mér og ná aftur upp einbeitingunni. Ég hef einbeitt mér að því í hverjum leik,“ sagði Bunting.

„Ég vil líka gefa Luke [Humphries] hrós. Hann gaf sér tíma að æfa með mér. Við skipulögðum það fyrir þremur eða fjórum mánuðum síðan og það er að skila mér miklu,“ sagði Bunting.

„Nú er stressið úr sögunni og ég get notið þess að klára mótið,“ sagði Bunting. Hann hefur einu sinni áður komist í undanúrslit en það var árið 2021 þegar hann datt síðan út á móti Gerwyn Price.

Hann mætir Luke Littler í undanúrslitunum í kvöld en í hinum leiknum mætast Chris Dobey og Michael van Gerwen. Útsending á Vodafone Sport hefst klukkan 19.25.


Tengdar fréttir

Skýtur fast á Wrig­ht og segir Littler von­brigði mótsins

Átta manna úrslit heimsmeistaramótsins í pílukasti fara fram í Alexandra Palace í London í dag. Þrefaldi heimsmeistarinn Michael van Gerwen verður þar í eldlínunni en hann skaut fast á Peter „Snakebite“ Wright og ungstirnið Luke Littler fyrir viðureignir dagsins.

Vann nauman sigur með geitung í hárinu

Callan Rydz má prísa sig sælan að vera kominn áfram í átta manna úrslitin á HM í pílukasti, eftir 4-3 sigur gegn Rob Owen í dag. Geitungur gerði sig heimakominn í hári Rydz í miðjum leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×