Golf

Sjóð­heitur Gunn­laugur tryggði Evrópu einn sigur

Sindri Sverrisson skrifar
Gunnlaugur Árni Sveinsson keppir fyrir hönd Evrópu í Bonallack-bikarnum. Hér slær hann á vellinum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Gunnlaugur Árni Sveinsson keppir fyrir hönd Evrópu í Bonallack-bikarnum. Hér slær hann á vellinum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. EGA

Gunnlaugur Árni Sveinsson, landsliðskylfingur úr GKG, braut blað í íslenskri golfsögu í dag þegar hann keppti í Bonallack-bikarnum fyrir hönd Evrópu. Hann stóð sig frábærlega í fjórbolta og átti heiður að einu stigi fyrir Evrópuliðið.

Um er að ræða mót í anda Ryder-bikarsins þar sem tólf fremstu áhugakylfingar Evrópu mæta kollegum sínum frá Asíu og Eyjaálfu, á þriggja daga móti sem hófst í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í dag.

Gunnlaugur Árni, karlkylfingur ársins á Íslandi 2024, keppti með Svíanum Algot Kleen í dag. Þeir urðu að sætta sig við 2/1 tap í fjórmenningi (betri bolta spilað) í dag gegn Pichaksin Maichon frá Taílandi og Zhou Ziqin frá Kína. Þess má geta að Maichon hefur verið í hópi tuttugu efstu áhugakylfinga á heimslista.

Þeir Gunnlaugur Árni og Kleen unnu hins vegar sigur í fjórbolta gegn sömu andstæðingum, 1/0. Í fjórbolta spila allir með sinn bolta og þar var Gunnlaugur Árni sjóðheitur og tryggði sigur á fjórum holum, eða holu 4, 5, 7 og 8, og náðu þeir Kleen þá mest þriggja holu forskoti. Ziqin og Maichon unnu svo holu 10 og 14, en náðu aldrei að jafna leikinn.

Gunnlaugur Árni Sveinsson, þriðji frá vinstri í neðri röð, er einn af tólf fulltrúum Evrópu á mótinu.EGA

Evrópuliðið fékk alls 1,5 vinning í fjórmenningnum gegn 3,5, en bætti það svo upp í fjórboltanum með 3,5 vinningum gegn 1,5. Staðan er því hnífjöfn, 5-5.

Á morgun verður aftur leikið í fjórmenningi og fjórbolta, en mótinu lýkur svo með tólf einvígum á föstudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×