Handbolti

Enn ó­víst að stuðnings­menn Ís­lands fái HM-treyjur: „Af­skap­lega leitt“

Sindri Sverrisson skrifar
Karlalandsliðið spilaði í fyrsta sinn í nýju landsliðsbúningunum gegn Svíþjóð í gær. Liðin gerðu þá 31-31 jafntefli í vináttulandsleik í Kristianstad.
Karlalandsliðið spilaði í fyrsta sinn í nýju landsliðsbúningunum gegn Svíþjóð í gær. Liðin gerðu þá 31-31 jafntefli í vináttulandsleik í Kristianstad. epa/Johan Nilsson

Íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur leik á HM í Zagreb næsta fimmtudagskvöld. Nýjar landsliðstreyjur úr smiðju Adidas eru enn ófáanlegar fyrir stuðningsmenn, og í versta falli fara treyjurnar ekki í sölu fyrr en eftir heimsmeistaramótið.

Eftir áralangt samstarf við Kempa tilkynnti HSÍ í nóvember um nýjan búningaframleiðanda sambandsins, Adidas.

Kvennalandslið Íslands frumsýndi treyjurnar á EM en stuðningsmenn liðsins gátu ekki orðið sér úti um búninginn. Treyjurnar voru ekki heldur í neinum jólapökkum og enn er óvíst hvenær þær skila sér til landsins.

Perla Ruth Albertsdóttir og liðsfélagar í kvennalandsliðinu frumsýndu Adidas-treyjurnar á EM í nóvember og desember.Getty/Christina Pahnke

„Við erum stöðugt að pressa á svör frá Adidas,“ segir Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ.

„Ég er ennþá að gæla við það [að treyjurnar fari í sölu fyrir HM]. Þetta er aðeins öðruvísi en áður því nú erum við ekki umsjónaraðili með þessu, svo við erum ekki í beinum tengslum við það hvenær þær fari í sölu. Við pressum eins og við getum á að það gerist sem fyrst, en þetta snýst eitthvað um framleiðslu hjá Adidas,“ segir Róbert.

Allir vildu að þetta væri löngu frágengið

Örvar Rudolfsson hjá Sportmönnum, innflutningsaðila Adidas á Íslandi, segist engu geta lofað um það hvenær treyjurnar fari í sölu.

„Það að treyjurnar séu ekki komnar er afskaplega leitt. Allir hlutaðeigandi; við, HSÍ, Adidas Global, allir vildu að þetta yrði frágengið fyrir þónokkru síðan,“ segir Örvar. Hann ítrekar að þó að Sportmenn séu HSÍ innan handar þá sé samningur sambandsins við Adidas Global.

Strákarnir okkar hafa spilað í Kempa-treyjum á mörgum stórmótum. Nú leika þeir í Adidas-búningum.vísir/Vilhelm

Heldur ástæðunum fyrir sig

Örvar kveðst ekki vilja fara út í ástæður þess hve það hefur dregist að fá treyjurnar til landsins.

„Treyjurnar eru í framleiðslu, þær eru framleiddar lengra en skemur í burtu, og ég sé ákveðna dagsetningu í mínu kerfi um hvenær þær koma en ég vil ekki gefa út dagsetningu fyrr en ég get staðið við hana,“ segir Örvar en sú dagsetning er þó að minnsta kosti ekki eftir HM.

„Það eru fleiri en ein og fleiri en tvær ástæður fyrir þessu en ég ætla að halda þeim fyrir mig. Það breytir ekki stöðunni neitt hvort almenningur viti ástæðurnar fyrir þessum drætti, en sá dráttur liggur á ýmsum stöðum,“ segir Örvar.

Ljóst er að áhugasamir stuðningsmenn strákanna okkar fá að vita af því um leið og hægt verður að nálgast landsliðstreyjur. Treyjurnar koma fyrst hingað til lands en verða svo einnig mögulega til sölu í Zagreb á meðan á HM stendur, fyrir þá fjölmörgu stuðningsmenn sem þangað stefna. Eins og fyrr segir gæti svo farið í versta falli að engar treyjur verði í boði fyrr en eftir HM.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×