Sport

Hljóp mara­þon­hlaup á hverjum degi í heilt ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hilde Dosogne tókst hið ótrúlega eða að hlaupa 366 maraþonhlaup á einu ári.
Hilde Dosogne tókst hið ótrúlega eða að hlaupa 366 maraþonhlaup á einu ári. marathonwoman366

Belgíski ofurhlauparinn Hilde Dosogne náði að klára ótrúlegt og sögulegt afrek á síðasta degi ársins 2024.

Hin 55 ára gamla Dosogne hljóp heilt maraþonhlaup á 366 dögum í röð.

Hún byrjaði 1. janúar 2024 og endaði á Gamlársdag 2024. Þetta voru 366 dagar því árið 2024 var hlaupár.

Hún fyrsta konan eða karlinn sem nær að hlaupa svo mörg maraþonhlaup á einu ári.

„Þetta er frábært. Ég er þvílíkt glöð að hafa náð að klára þessi 366 maraþonhlaup,“ sagði Hilde Dosogne þegar hún kom í mark.

Tíminn hennar í 366. og síðasta maraþonhlaupinu voru fjórir klukkutímar, sautján mínútur og fjörutíu sekúndur.

Hún fór í gegnum 24 hlaupaskó á þessu ári sem segir sína sögu.

Hvert hlaup eru rúmir 42 kílómetrar. Hún hljóp alls meira en fimmtán þúsund og fjögur hundruð kílómetra á árinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×