Innlent

Fram­lengir stuðnings­kerfi um ár en ræðst í endur­skoðun

Atli Ísleifsson skrifar
Logi Már Einarsson er ráðherra menningarmála og er þar með með málefni fjölmiðla á sinni könnu.
Logi Már Einarsson er ráðherra menningarmála og er þar með með málefni fjölmiðla á sinni könnu. Vísir/Vilhelm

Logi Már Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hyggst leggja fram frumvarp um áframhaldandi stuðning til einkarekinna fjölmiðla.

Ráðherra lagði fram minnisblað um málið á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun að því er segir á vef ráðuneytisins. Markmiðið væri að viðhalda fyrirsjáanleika í rekstri einkarekinna fjölmiðla og tryggja að þeir geti sinnt lýðræðishlutverki sínu. 

„Frumvarpið mun taka óbreytt upp þau ákvæði sem féllu úr gildi um áramótin og er ráðgert að gildistími frumvarpsins verði eitt ár og er það að fullu fjármagnað í fjárlögum þessa árs.

Vinna er hafin við endurskoðun á kerfinu og tekur hún meðal annars tillit til þeirra athugasemda sem gerðar hafa verið og af vinnu við fjölmiðlastefnu og einstakra þátta hennar en stefnt er að því að leggja fram þingsályktunartillögu á vorþingi sem mælir fyrir um fjölmiðlastefnu. Vinna við endurskoðun á stuðningskerfi einkarekinna fjölmiðla tekur mið af því að frumvarp þess efnis verði á þingmálaskrá næsta vetrar,“ segir á vef ráðuneytisins. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×