Handbolti

Dana fór illa með færin sín en það kom ekki að sök

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dana Björg Guðmundsdóttir skoraði fjögur mörk fyrir Volda í dag.
Dana Björg Guðmundsdóttir skoraði fjögur mörk fyrir Volda í dag. HSÍ

Dana Björg Guðmundsdóttir og félagar hennar í Volda eru áfram sigurreifar á toppi norsku b-deildarinnar eftir útisigur í dag.

Volda hefur nú unnið sjö deildarleiki i röð og eru á góðri leið upp í úrvalsdeildina með sama áframhaldi.

Volda vann fimm marka útisigur á Utleira, 29-24. Heimastúlkur í Utleira voru þó einu marki yfir í hálfleik, 12-11.

Volda vaknaði í seinni hálfleik og landaði sigrinum með sannfærandi hætti. Volda vann seinni hálfleikinn 18-12.

Dana Björg fór illa með færin sín framan af leik og klikkaði á fimm af fyrstu sjö skotum sínum. Fjögur af þessum misheppnuðu skotum hennar komu í hraðaupphlaupum.

Hún endaði leikinn með fjögur mörk úr níu skotum og eina stoðsendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×