Golf

Vann undra­barnið og braut blað í ís­lenskri golfsögu

Smári Jökull Jónsson skrifar
Gunnlaugur Árni einbeittur að svip á mótinu um helgina.
Gunnlaugur Árni einbeittur að svip á mótinu um helgina. Vísir/Getty

Gunnlaugur Árni Sveinsson, landsliðskylfingur úr GKG, braut blað í íslenskri golfsögu í vikunni þegar hann keppti í Bonallack-bikarnum fyrir hönd Evrópu.

Mótið fór fram í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Á föstudag vann hann indverska undrabarnið Kartik Singh í einvígi á lokadegi mótsins. Evrópa tapaði hins vegar keppninni gegn úrvalsliði Asíu og Eyjaálfu með aðeins eins vinnings mun.

„Frábært að fá að spila á þessu móti og vera hér í Dubai. Þetta var frábær upplifun, allt frá því að undirbúa okkur með liðinu og kynnast öllum og í það að berjast fyrir hverjum einasta punkt og stigi í leikjunum. Allir leikirnir voru rosalega jafnir og maður þurfti virkilega að spila vel og sækja hvern einasta fugl og stig. Heilt yfir var þetta rosalega skemmtileg upplifun,“ sagði Gunnlaugur Árni í viðtali sem sýnt var í Sportpakkanum á Stöð 2 í kvöld.

Gunnlaugur Árni sagði að hann fengi mikla reynslu í svona móti. Hann var aðeins einn tólf liðsmanna Evrópu í Bonallack-bikarnum en á mótinu mæta tólf fremstu áhugakylfingar Evrópu þeim tólf bestu frá Asíu og Eyjaálfu.

Gunnlaugur Árni stóð sig vel á mótinu en þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingur er valinn í úrvalslið Evrópu á þessu móti.

„Frábær upplifun að vera í þessu umhverfi með bestu kylfingum í heimi. Læra smá hluti af þeim og það verður gaman að byggja ofan á þetta.“

Allt innslagið og viðtalið við Gunnlaug Árna má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir

Gunnlaugur vann en Evrópa tapaði

Gunnlaugur Árni Sveinsson vann indverska undrabarnið Kartik Singh í einvígi á lokadegi Bonallack-bikarsins í golfi, í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í dag. Evrópa tapaði hins vegar keppninni, gegn úrvalsliði Asíu og Eyjaálfu, með aðeins eins vinnings mun.

Sjóðheitur Gunnlaugur tryggði Evrópu einn sigur

Gunnlaugur Árni Sveinsson, landsliðskylfingur úr GKG, braut blað í íslenskri golfsögu í dag þegar hann keppti í Bonallack-bikarnum fyrir hönd Evrópu. Hann stóð sig frábærlega í fjórbolta og átti heiður að einu stigi fyrir Evrópuliðið.

Kylfurnar eftir í Amsterdam en Gunn­laugur nýtur sín meðal þeirra bestu

„Það er mikill heiður að vera valinn til að spila fyrir land og heimsálfu, og ég er mjög þakklátur fyrir það,“ segir Gunnlaugur Árni Sveinsson, landsliðskylfingur úr GKG og einn aðeins tólf liðsmanna úrvalsliðs Evrópu í Bonallack-bikarnum í golfi. Það gekk ekki áfallalaust hjá honum að komast á mótið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×