Körfubolti

„Ég vaknaði fimm í morgun, ég er það spenntur“

Aron Guðmundsson skrifar
Jón Halldór Eðvaldsson er mættur aftur í þjálfun ásamt Sigurði Ingimundarssyni félaga sínum. 
Jón Halldór Eðvaldsson er mættur aftur í þjálfun ásamt Sigurði Ingimundarssyni félaga sínum.  Stöð 2 Sport

Körfu­knatt­leiks­deild Kefla­víkur greindi frá ráðningu Sigurðar Ingi­mundar­sonar og Jóns Halldórs Eðvalds­sonar í stöðu þjálfara kvenna­liðs félagsins í gær. Þessir miklu reynslu­boltar, sem eru með nokkra titla á milli sín og hafa báðir gert kvenna­lið Kefla­víkur að Ís­lands- og bikar­meisturum áður, voru hættir þjálfun en þegar að kallið kom frá félaginu þeirra gátu þeir ekki litið undan.

„Það er bara svo­leiðis. Staðan var bara þannig að stjórn körfu­knatt­leiks­deildar Kefla­víkur talaði við okkur á sunnu­daginn. Við gátum ekki annað gert en að leggja okkar lóð á vogar­skálarnar í þessu máli. Ég og Siggi erum rosa­lega góðir vinir innan sem utan körfu­boltans. Verjum tölu­verðum tíma saman og höfum alltaf gert. Þetta verður bara fínt. Það er á hreinu að hann ræður og ég fylgi með.“

Gengi Kefla­víkur, sem er ríkjandi Ís­lands-, deildar- og bikar­meistari, hefur verið undir væntingum á tíma­bilinu. Liðið er fallið úr leik í bikar­keppninni og mun ekki verja titil sinn þar en í Bónus deildinni er allt opið. Eftir meiðsla­hrjáða byrjun og takt­leysi er Kefla­vík samt sem áður í 3.sæti Bónus deildarinnar, gæði leik­manna liðsins eru óum­deild en nú þarf að finna rétta taktinn. Fyrsta æfing undir stjórn Sigurðar og Jóns Halldórs fór fram í gær. Fyrsti leikur er í kvöld gegn Grinda­vík.

„Þetta gerist náttúru­lega allt svo rosa­lega hratt. Þessi æfing var kannski ekkert merki­leg í gær. Við vorum bara að sjá hver staðan væri, það var stuttur fundur fyrir æfingu og svo var farið í að undir­búa þennan leik sem er á eftir. Knappur tími og kannski ekki hentugast í heimi að taka að sér þjálfun á sunnu­degi og spila leik á þriðju­degi. Menn vilja yfir­leitt lengri undir­búning en við þurfum bara að komast í gegnum daginn í dag og þá höfum við viku í næsta leik.“

Keflavík sópaði upp öllum titlum sem í boði voru á síðasta tímabili Vísir/Diego

„Ef and­stæðingurinn skorar ekkert stig þá vinnum við ef við skorum eitt stig“

Leikur Kefla­víkur og Grinda­víkur verður sýndur í beinni út­sendingu á Stöð 2 Sport klukkan korter yfir sjö í kvöld og leiðin að sigri fyrir Kefla­vík er ekki flókin þegar að maður heyrir út­skýringar Jóns Halldórs á leik­planinu.

„Bara spila vörn. Nú­mer eitt, tvö og þrjú. Ef and­stæðingurinn skorar ekkert stig þá vinnum við ef við skorum eitt stig. Þetta er bara þar. Spila vörn, allt í botni, allan leikinn.“

Kefla­vík í þriðja sæti Bónus deildarinnar þegar deildin er rétt rúm­lega hálfnuð og góður tími til að byggja upp ágætis takt. Eru Sigurður og Jón Halldór bjartsýnir á að geta landað Ís­lands­meistara­titlinum á nýjan leik?

„Þeir sem þekkja okkur vita að við förum í þetta fullir bjartsýni og ætlum að gera allt sem við getum til að hjálpa liðinu að ná þeim mark­miðum var lagt af stað með fyrir tíma­bilið. Þeir sem þekkja Kefla­vík vita að það er alltaf lagt af stað með það fyrir stafni að vinna. Það hefur ekkert breyst. Auðvitað ætlum við að reyna vinna. Þetta hefur verið brösug byrjun en við skulum vona að við getum lagt okkar lóð á vogar­skálarnar og fengið þetta til að líta betur út á næstu misserum.“

Sara Rún Hinriksdóttir er ein af lykilleikmönnum Keflavíkur. Vísir/Diego

„Hefðum aldrei farið í þetta ef þetta hefði verið ein­hver annar klúbbur“

Eftir tölu­verðan tíma fjarri baráttunni innan vallar og hliðar­línunni, er kominn fiðringur í þig fyrir því að taka þér aftur stöðu á hliðar­línunni í kvöld?

„Á sunnu­daginn klukkan þrjú var enginn fiðringur og enginn áhugi á að fara aftur í þjálfun. Svo mætti maður upp í íþrótta­hús í gær til þess að vera í kringum allt þetta batterí okkar sem er ótrú­lega flott og fal­legt. Við skulum orða það þannig að ég vaknaði fimm í morgun. Ég er það spenntur.“

Sigurður og Jón Halldór sömdu við körfu­knatt­leiks­deild Kefla­víkur út yfir­standandi tíma­bil.

Ef vel gengur er mögu­leiki á því að þið tjaldið lengur en til einnar nætur?

„Við skulum bara byrja á þessu,“ svarar Jón Halldór hlæjandi. „ Eitt skref í einu og allt það. Nei við réðum okkur bara út tíma­bilið. Vonandi koma svo ein­hverjir öflugir aðilar inn í þetta á eftir okkur. Við erum bara að leggja klúbbnum okkar lið. Við hefðum aldrei farið í þetta ef þetta hefði verið ein­hver annar klúbbur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×