Viðskipti innlent

Heildar­afli síðasta árs 28 pró­sent minni en 2023.

Atli Ísleifsson skrifar
Heildarafli ársins 2024 var tæplega 994 þúsund tonn. Myndin er frá Suðureyri og er úr safni.
Heildarafli ársins 2024 var tæplega 994 þúsund tonn. Myndin er frá Suðureyri og er úr safni. Vísir/Vilhelm

Heildarafli ársins 2024 var tæplega 994 þúsund tonn sem er 28 prósent minni afli en árið 2023.

Frá þessu segir á vef Hagstofunnar. Þar kemur fram að uppsjávarafli hafi verið 545 þúsund tonn og dregist saman um 42 prósent frá fyrra ári vegna aflabrests á loðnu. 

„Botnfiskafli árið 2024 var 421 þúsund tonn sem er aukning um 4% frá fyrra ári. Þá var flatfiskafli 24 þúsund tonn og skelfiskafli 3.700 tonn.

Aflamagn í desember 2024 var rúmt 61 þúsund tonn sem er 32% meiri afli en í desember árið á undan. Botnfiskafli í mánuðinum var 29 þúsund tonn og jókst um 8%. Þar af var þorskaflinn um 16 þúsund tonn, 6% minni en í desember 2023. Uppsjávarafli var 31 þúsund tonn sem er 67% meira en í desember 2023.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands, útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×