Í frétt mbl.is kemur fram að gæsluvarðhald yfir manninum hafi runnið út í dag. Þá hafi hann verið búinn að sitja í varðhaldi í 12 vikur og ekki mátt vera lengur án þess að ákæra yrði gefin út. Maðurinn verður samkvæmt fréttinni áfram í varðhaldi.
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um miðnætti þann 13. október vegna málsins og héldu viðbragðsaðilar strax á vettvang. Endurlífgunartilraunir hófust um leið og komið var á vettvang en þær báru ekki árangur. Konan, sem var á sjötugsaldri, var úrskurðuð látin á vettvangi.
Sonur konunnar var handtekinn stuttu síðar. Þegar árásin átti sér stað var stutt síðan hann hafði sloppið úr fangelsi en hann var dæmdur í fangelsi fyrir að ráðast á móður sína. Hann hlaut fyrir það tveggja ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að ráðast gegn móður sinni, kynferðisbrot gegn unglingsstúlku, og brot gegn valdstjórninni.
Hann var ákærður fyrir tilraun til manndráps fyrir árásina gegn móðurinni, en dómurinn heimfærði brotið sem stórfellda líkamsárás.
Málið varðaði atvik sem átti sér stað á heimili móðurinnar í apríl 2022. Manninum var gefið að sök að slá móður sína ítrekað með krepptum hnefum í líkama, andlit og höfuð, sparka í hana og taka hana ítrekað hálstaki þannig að hún missti meðvitund. Þá var hann jafnframt ákærður fyrir að hóta henni ítrekað lífláti.