Handbolti

Ein­kunnir Strákanna okkar á móti Græn­höfða­eyjum: Hlað­borð fyrir horna­mennina

Íþróttadeild Vísis skrifar
Orri Freyr Þorkelsson fær spaðafimmu frá aldursforseta liðsins, Björgvini Páli Gústavssyni.
Orri Freyr Þorkelsson fær spaðafimmu frá aldursforseta liðsins, Björgvini Páli Gústavssyni. vísir/Vilhelm

Ísland vann þrettán marka sigur á Grænhöfðaeyjum, 34-21, í fyrsta leik sínum í G-riðli heimsmeistaramótsins í handbolta karla í kvöld. Flestir leikmenn íslenska liðsins spiluðu vel í sigrinum sem var mjög öruggur.

Íslendingar tóku strax völdin, komust í 8-2 og leiddu með tíu mörkum í hálfleik, 18-8.

Strákarnir okkar byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti og náðu mest fjórtán marka forskoti. Eftir það kom smá losarabragur á íslenska liðið og Grænhöfðaeyjar skoruðu fimm mörk í röð.

Okkar menn stigu þá aftur á bensíngjöfina og unnu á endanum þrettán marka sigur, 34-21.

Íslensku hornamennirnir höfðu úr miklu að moða í leiknum og skoruðu samtals tuttugu mörk. Viktor Gísli Hallgrímsson varði vel í markinu og vörnin var lengst af gríðarlega sterk.

Byrjunarliðið stóð fyrir sínu en mönnunum sem komu inn af bekknum gekk misvel að setja mark sitt á leikinn.

Líkt og áður þá gefur íþróttadeild Vísis og Stöðvar tvö leikmönnum og þjálfaranum einkunnir fyrir frammistöðu sína.

Leikmenn og þjálfarar fá einkunn á bilinu 1-6 með umsögn, en neðst í fréttinni má sjá hvað hver einkunn þýðir.

Einkunnir Íslands gegn Grænhöfðaeyjum:

- Byrjunarlið Íslands í leiknum -

Viktor Gísli Hallgrímsson, markvörður - 5 (11 varin skot - 37:53 mín.) Var frábær í fyrri hálfleik þar sem hann tók átta af þeim ellefu skotum sem hann varði í leiknum. Endaði með fimmtíu prósent hlutfallsmarkvörslu sem er ekki hægt að kvarta yfir.

Orri Freyr Þorkelsson, vinstri hornamaður - 5 (8/3 mörk - 30:05 mín.) Glansaði í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramóti. Spilaði allan fyrri hálfleik og skoraði þá sex mörk. Bætti svo tveimur vítamörkum við í seinni hálfleik og endaði markahæstur á vellinum. Sýndi gríðarlega öryggi í færunum sínum. Geislar af sjálfstrausti og er að spila frábærlega um þessar mundir.

Elvar Örn Jónsson, vinstri skytta - 4 (3 mörk - 36:09 mín.) Gríðarlega öflugur í miðri vörninni og stöðvaði ófáar sóknir Grænhöfðeyinga. Stal boltanum í þrígang. Klikkaði á fyrstu þremur skotunum sínum en skoraði úr næstu þremur og gaf fjórar stoðsendingar. Flottur leikur hjá Selfyssingnum.

Janus Daði Smárason, leikstjórnandi - 4 (2 mörk - 34:14 mín.) Mjög sterkur í vörninni og átti stóran þátt í því að Ísland fékk aðeins 21 mark á sig. Stýrði sókninni vel, skoraði tvö mörk og gaf sex stoðsendingar.

Viggó Kristjánsson, hægri skytta - 4 (3 mörk - 40:35 mín.) Hefur oft farið meira fyrir Viggó en hann skilaði skínandi góðri frammistöðu. Varnarleikurinn var til mikillar fyrirmyndar og Seltirningurinn gerði sitt lítið að hverju í sókninni. Hann skoraði þrjú mörk, gaf sex stoðsendingar og fiskaði tvö víti.

Óðinn Þór Ríkharðsson, hægri hornamaður - 4 (5/1 mörk - 28:51 mín.) Var í markakeppni við Orra í fyrri hálfleik og skoraði þá fimm mörk. Klikkaði á einu víti og einu skoti til en skilaði sínu.

Ýmir Örn Gíslason, línumaður - 4 (1 mark - 48:21 mín.) Stýrði vörninni og var grjótharður í baráttunni við líkamlega sterka leikmenn Grænhöfðaeyja. Fékk ekki úr miklu að moða í sókninni. Spilaði mest íslensku leikmannanna í leiknum.

- Menn sem komu inn af bekknum í leiknum -

Björgvin Páll Gústavsson, markvörður - 2 (3 varin skot - 19:37 mín.) Kom inn á þegar um tuttugu mínútur voru eftir, á versta kafla íslenska liðsins í leiknum. Varði aðeins þrjú skot af þeim þrettán sem hann fékk á sig en gaf tvær stoðsendingar.

Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi - 2 (1 mark - 19:38 mín.) Magdeburgar-maðurinn sýndi ekki sparihliðarnar í kvöld. Komst aldrei í neinn takt við leikinn og tapaði boltanum fjórum sinnum. Verður að nýtast íslenska liðinu betur en hann gerði í þessum leik.

Elliði Snær Viðarsson, línumaður - 2 (0 mörk - 11:20 mín.) Klikkaði á eina skotinu sem hann tók og fékk svo rauða spjaldið fyrir afar klaufalegt brot. Fékk einnig rautt spjald í fyrri leiknum gegn Svíum. Verður að vera skynsamari í sínum aðgerðum og beisla keppnisskapið betur. Við þurfum á Elliða að halda.

Þorsteinn Leó Gunnarsson, vinstri skytta - 3 (2 mörk - 10:36 mín.) Fékk sínar fyrstu mínútur á stórmóti og nýtti þær ágætlega. Skoraði tvö glæsileg mörk með þrumuskotum. Náði svo sex stoppum í vörninni. Getur reynst íslenska liðinu mjög dýrmætur í framhaldinu.

Teitur Örn Einarsson, hægri skytta - 2 (1 mark - 24:37 mín.) Spilaði megnið af seinni hálfleiknum en gerði engar rósir. Klikkaði á tveimur skotum og fékk tvær brottvísanir. Teitur verður að gera betur þegar hann fær tækifæri.

Bjarki Már Elísson, vinstra horn - 3 (4 mörk - 27:34 mín.) Spilaði seinni hálfleikinn og komst vel frá sínu. Skoraði einu sinni í autt markið, einu sinni úr hraðaupphlaupi, einu sinni af línu og einu sinni úr vinstra horninu. Virðist vera kominn aðeins í skuggann af Orra.

Sigvaldi Guðjónsson, hægra horn - 3 (3 mörk - 29:48 mín.) Skipti við Óðin í hálfleik. Klúðraði fyrsta skotinu sínu en skoraði úr næstu þremur. Fínt dagsverk hjá Sigvalda.

Sveinn Jóhannsson, línumaður - 2 (0 mörk - 5:51 mín.) Virkaði hálf týndur þær fáu mínútur sem hann fékk.

Haukur Þrastarson, leikstjórnandi/vinstri skytta - 3 (1 mark - 15:42 mín.) Kom frekar seint inn á og lék aðeins síðasta fjórðung leiksins. Skoraði eitt mark og opnaði vel fyrir samherja sína.

Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari - 4 Íslenska liðið lék mjög vel í kvöld og fyrir utan 5-0 kaflann um miðjan seinni hálfleik hlýtur Snorri að vera að mestu sáttur með frammistöðu íslenska liðsins. Vörnin var mjög sterk öflug, sérstaklega í fyrri hálfleik, og Íslendingar skoruðu tólf mörk úr hraðaupphlaupum. Snorri hefði ef til vill getað látið Þorstein og Hauk fá fleiri mínútur og hann á enn eftir að fá það besta út úr Gísla.

Útskýring á einkunnum

  • 6 - Heimsklassa frammistaða
  • 5 - Frábær frammistaða
  • 4 - Góð frammistaða
  • 3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu
  • 2 - Ekki nógu góð frammistaða
  • 1 - Slakur leikur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×