Yfir­lýsing frá City með stór­sigri

Siggeir Ævarsson skrifar
Phil Foden skoraði tvö í dag áður en hann fór af velli til hvíldar
Phil Foden skoraði tvö í dag áður en hann fór af velli til hvíldar vísir/Getty

Englandsmeistarar Manchester City áttu ekki í neinum vandræðum með nýliða Ipswich í ensku úrvalsdeildinni í dag en City-menn léku við hvurn sinn fingur og unnu að lokum öruggan og þægilegan 6-0 sigur.

Heimamenn byrjuðu leikinn ágætlega en þegar Phil Foden skoraði fyrsta mark gestanna á 27. mínútu brustu allar flóðgáttir. Mörkin urðu að lokum sex og hefðu hæglega getað orðið fleiri en Pep Guradiola gerði alls fimm skiptingar á sínu liði enda þétt leikjadagskrá framundan hjá City.

Erling Haaland fagnaði nýjum risasamningi sínum með marki en þrátt fyrir að hægst hafi töluvert á markaskorun hans miðað við hvernig þau komu á færibandi í haust er hann engu að síður næstmarkahæstur í deildinni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira